Þá segjum við frá áformum í Grindavík um að hefja mögulega aftur leit að jarðneskum leifum Lúðvíks Péturssonar þegar framkvæmdir við sprunguviðgerðir á svæðinu hefjast.
Að auki verður rætt við forsvarsmann Senu Live en vandræði komu upp í morgun þegar miðasala á Foo Fighters fór í gang. Hann biðlar til fólks um að sýna þolinmæði.
Í íþróttapakkanum verður svo greint frá nýjustu tíðindum úr herbúðum Breiðabliks þar sem Jökull Elísabetarson er byrjaður að byggja upp nýtt lið.