Síðustu daga hefur verið fjallað um það að hveitiskandall í Danmörku hafi teygt sig til Íslands.
Vísir hefur í vikunni greint frá umfangsmiklu mengunarmáli sem hefur vakið athygli í Danmörku eftir að rottur, mýs, dýraskítur, dauð dýr, skemmt korn, mygla og leifar af olíu fundust í geymslum Danish Agro haustið 2025.
Danska matvælaeftirlitið ráðlagði almenningi í landinu að farga tilteknu hveiti frá danska fyrirtækinu Valsemøllen frá síðasta ári vegna mögulegrar mengunar frá kornbirginum Danish Agro sem fyrirtækið skipti við. Samkvæmt Extrablaðinu kærði eftirlitið Danish Agro til lögreglu í dag vegna sölu á korni sem talið var óhæft til manneldis.
Greint hefur verið frá því í vikunni að hveiti frá Valsemøllen hafi verið selt á Íslandi undir merkjum First Price, Kornax og Coop. Fram kom í frétt í gær að hveitið hefði verið selt fyrir löngu en að það ætti að innkalla það sem eftir er.
Neðangreindar vörur
Innköllun er eingöngu fyrir neðangreindar framleiðslulotur og vörumerki. Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki. Vörunni má farga eða fá nýja vöru í verslunum.
Vörumerki: Kornax
- Vöruheiti: Kornax rautt, blátt og heilhveiti
- Nettómagn: 2 kg
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Valsemøllen A/S, Køge. Framleitt fyrir Lífland ehf. á Íslandi
- Nettóþyngd: 2 kg
- Best fyrir dagsetningar: 15-09-2026 og 29-09-2026 (blátt og rautt hveiti), 15-09-2026 (heilhveiti).
- Dreifingaraðilar: Allar helstu matvöruverslanir landsins.
Vöruheiti: First Price hveiti
Vörumerki: First Price
- Nettómagn: 2 kg
- Framleiðandi: Valsemøllen A/S
- Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
- Framleiðsluland: Danmörk
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 01.09.2026 og 15.09.2026
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreifing: Verslanir í eigu Krónunnar
Vörumerki: Euro Shopper
- Vöruheiti: Hveiti
- Nettómagn: 2 kg
- Umbúðir: Pappír
- Strikamerki: 8719323800915
- Best fyrir dagsetning: 15-09-2026
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Valsemøllen A/S í Køge í Danmörku
Dreifing: Allar verslanir Bónuss og Hagkaups, Stórkaups og verslanir Olís í Neskaupstað, Varmahlíð, Gullinbrú, og Norðlingaholti.