Eftir innrásina í Ceuta í sumar fjölgaði skráðum málum vegna árása með hnífum og öðrum eggvopnum úr 23 í 268, og málum vegna árása með skotvopnum úr átta í 56. Tölurnar ná yfir tímabilið frá 30. júlí til 29. október, borið saman við sama tímabil í fyrra, og koma fram í innri skýrslu neyðarþjónustunnar 112 sem spænski miðillinn El Español hefur undir höndum.
Á sama tímabili skráði neyðarþjónustan 30 mál um kynferðisofbeldi, samanborið við fjögur mál árið áður. Í 16 málanna komu börn við sögu, en ekkert slíkt mál var skráð árið áður.
Ceuta er spænsk borg á norðurströnd Afríku, við landamærin að Marokkó. Tugþúsundir manna fóru yfir landamærin inn í borgina í innrásinni 30. og 31. júlí og El Español setur tölurnar fram í því samhengi.
Útköll, ekki staðfest brot
Tölurnar eru skráning neyðarþjónustunnar 112 á málum sem henni bárust, ekki endilega staðfest brot. El Español tekur fram að tölurnar einar og sér sýni ekki orsakasamband milli innflytjenda og afbrota.
Heildarfjöldi skráðra mála hjá neyðarþjónustunni fór úr 2.233 í 11.286 á sama tímabili, eða fimmfalt meira. Skráðum innbrotum fjölgaði úr 35 í 1.018 og málum um rán með ofbeldi eða hótunum á almannafæri úr 11 í 115.
Krefjast viðbragða frá Madrid
Heimildarmenn stjórnvalda í Ceuta, sem El Español ræðir við, segja tölur neyðarþjónustunnar áhyggjuefn. Þeir kalla eftir viðbrögðum spænskra stjórnvalda. „Við erum ekki aðeins að tala um ólöglegan straum fólks,“ segir talsmaður. „Þetta er neyðarástand sem snertir beint öryggi, ró borgarbúa og venjulega starfsemi borgarinnar.“
Juan Jesús Vivas, forseti sjálfstjórnarinnar í Ceuta, hefur gagnrýnt Pedro Sánchez forsætisráðherra harðlega fyrir viðbrögðin við innrásinni í sumar. Spurður hvort Sánchez hefði framið landráð vísaði Vivas því til dómstóla. „Ég dæmi ekki fyrir fram, en ekki er hægt að láta sem málið sé afgreitt,“ sagði hann.
Stjórnvöld í Ceuta hafa einnig ákveðið að verja um 247 þúsund evrum á næsta ári til fræðslu og forvarna gegn kynferðisofbeldi. Fjárveitingin hefur ekki verið kynnt sem beint svar við tölum neyðarþjónustunnar.
„Öryggi íbúa Ceuta á að vera ofar öllu öðru. Það er ófrávíkjanleg skylda ríkisins að tryggja það,“ segja heimildarmenn stjórnvalda í borginni.
🔴 Las agresiones sexuales en Ceuta se multiplican por 6, hay 7 veces más ataques de arma de fuego y 12 más con arma blanca
✍️ Por @ADPrietoEE https://t.co/cIR0JYaND2
— EL ESPAÑOL (@elespanolcom) November 18, 2026