Fyrir tólf dögum kom upp bilun í hífingaspili einnar þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Í framhaldi var ákveðið að nota ekki sigbúnað neinnar þyrlu gæslunnar á meðan bilunin yrði greind og staðfest að hún gæti ekki komið upp í öðrum þyrlum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu.
Þessi tímabundna ráðstöfun hefur skert viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar í þeim verkefnum sem krefjast hífinga, einkum á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Þyrlurnar þurfa að geta lent til þess að sinna útköllum.
Sjóbjörgunareiningar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og sérþjálfaðir fjallabjörgunarmenn hafa verið í sérstakri viðbragðsstöðu undanfarna daga sökum þess.
Danir til aðstoðar
Landhelgisgæslan fór einnig á leit við Dani og aðra samstarfsaðila sína að vera til taks ef þörf krefur. Danir voru til aðstoðar við Reykjavíkurhöfn síðustu helgi en engin erlend björgunarþyrla hefur verið á svæðinu síðan 17. nóvember.
Ásgeir segir að prufa eigi búnaðinn í dag, eftir viðgerð, og vonir standa til að hann verði kominn í fulla virkni á næstu dögum.
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að meðan á þessu standi séu öll björgunarsveitarútköll mönnuð betur í ljósi þess að ekki sé víst að hægt sé að kalla eftir aðstoð þyrlunnar við öll verkefni.