Nebraska-hjón Þorgerðar og þögn Sigmars

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar gerir vel við vini sína, hjónin sem eiga Nebraska ehf. Heiða Kristín Helgadóttir og Guðmundur Kristján Jónsson eiga einkahlutafélagið Nebraska. Guðmundur Kristján er fyrrverandi aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar.
Í vor fékk Heiða Kristín verktakasamning upp á 10,5 milljónir króna og notaði kennitölu Nebraska til millifærslu. Eftir samtal milli Þorgerðar Katrínar og Heiðu Kristínar var verktakagreiðslan hækkuð upp í 14 milljónir króna.
Utanríkisráðherra notaði þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB-umsókn sem tylliástæðu til að greiða vinkonu sinni 14 milljónir af opinberu fé. Utanríkisráðuneytið kom hvergi nærri framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Alþingi samþykkti, að tillögu ráðherra, að efnt skyldi til atkvæðagreiðslunnar. Landskjörstjórn sá um framkvæmd kosninganna. Engin þörf var á framlagi Heiðu Kristínar enda var hún í vinkonuhlutverki.
Engin starfslýsing fylgdi verktakasamningi ráðuneytis við Heiðu Kristínu í gegnum Nebraska. Aðeins var kveðið á um greiðslur, – sem voru síðan hækkaðar um 30 prósent samkvæmt fyrirmælum utanríkisráðherra.
Heiða Kristín var titlaður ráðgjafi ráðherra. Í samtali við fréttamann RÚV á kosningakvöldi sagði Heiða Kristín að hún hefði ,,djöflast í alls konar“ með Þorgerði Katrínu, mætti t.d. með ráðherra á stofnfund Já-hreyfingarinnar. Kokteilboð með ráðherra er ekki ráðgjöf.
Þjónustan sem Heiða Kristín veitti ráðherravinkonu sinni minnir á mál ríkislögreglustjóra sem hélt uppi vinkonu sinni með sporslum úr ríkissjóði. Vinkona ríkislögreglustjóra veitti ,,ráðgjöf“ og þáði verktakagreiðslur upp á milljónir.
Er upp komst um spillinguna hjá embætti ríkislögreglustjóra varð hvellur á alþingi og í fjölmiðlum. Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar gekk hvað harðast fram í kröfu um afsögn ríkislögreglustjóra. Sigmar sagði um vinkonuvæðingu í opinberu embætti:
Svona á ekki að fara með peningana okkar.
Í framhaldi skrifaði Sigmar að traust til ríkislögreglustjóra væri brostið. ,,Embættið hlýtur að vera stærra en einstaklingurinn sem gegnir því,“ staðhæfði þingflokksformaður Viðreisnar fyrir ári. Ríkislögreglustjóri var knúinn til afsagnar.
En nú þegir Sigmar þingmaður Viðreisnar. Utanríkisráðherra ræður vinkonu sína í verktöku hjá ráðuneytinu án starfslýsingar og hækkar verktakagreiðslur um 30 prósent eftir ,,munnlegt“ samkomulag. Á að fara svona með peningana okkar, Sigmar?
Í viðtengdri frétt kemur fram að Nebraska-hjónin skulda skatta upp 16 milljónir króna. Samkvæmt lögum og venjum eiga ríkisstofnanir ekki að ráða verktaka er standa ekki við skattskil. Utanríkisráðherra virti að vettugi lagafyrirmæli er hún réð Nebraska-vinkonuna sem verktaka.
Ríkisstjórnin stefnir að hallalausum fjárlögum. Stofnanir á vegum ríkisins herða sultarólina og segja upp starfsmönnum. Í gær tilkynnti lögreglan um uppsagnir. Á sama tíma seilist utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar í ríkissjóð til að fjármagna vinkonu sína – sem í ofanálag borgar ekki skatta.
Þorgerður Katrín er vinafá í Viðreisn. Um það vitnar flóttinn úr þingliðinu. Finnist heiðarlegir menn í þingflokki Viðreisnar, Sigmar undanskilinn, sjá þeir að við svo búið má ekki standa. Nebraska-hjúin sýna utanríkisráðuneytið sem greiðslumiðlun ráðherra er veitir ríkisfé til vina og viðhlæjenda. Þeirra fáu sem eftir eru.