Síðasti dagur COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi, samkvæmt dagskrá er í dag. Drög að samkomulagi voru birt í gær og eru skiptar skoðanir um þau meðal fulltrúa ríkja heims. Í drögunum er ekki minnst á jarðefnaeldsneyti. Á síðustu ráðstefnum hafa umræður um minnkun á notkun þess verið fyrirferðamiklar. Talið er að lokasprettur ráðstefnunnar dragist á langinn.
COP31 hefur staðið í borginni Antalya síðan 9. nóvember. Þar eru fulltrúar 200 ríkja. „Á þessum tímapunkti er enginn ánægður,“ sagði ráðherra loftslagsmála í Brasilíu, Aloisio Lopes Pereira de Melo, við fjölmiðla í morgun.
Í frumdrögum samkomulags sem voru birt í byrjun vikunnar voru hvatningarorð um að flýta aðgerðum til að hætta notkun jarðefnaeldsneytis, ásamt öðrum málum tengdum efnahag og loftslagsrannsóknum. Í nýrri og styttri útgáfu sem gefin var út í gær er ekkert minnst á olíu, gas og kol. Því hafa umhverfisverndarsinnar mótmælt.
AFP fréttaveitan hefur eftir ónefndum embættismanni hjá Evrópusambandinu að síðasta útgáfan sé ekki ásættanleg og ekki nógu metnaðargjörn. „Við viljum ekki að þessi COP verði jarðefnaeldsneytis-COP,“ sagði hann. Loftslagsráðherra Vanúatú, Ralph Regenvanu, segir textann mikil vonbrigði. Mikilvægt sé að hætta notkun jarðefnaeldsneytis í áföngum.
Ástralir eru gestgjafar loftslagsráðstefnunnar ásamt Tyrkjum. Í bréfi þeirra til sendinefnda segir að þriðju drögin að samkomulagi verði send út síðar í dag.