Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum hagtölum Hagstofu Íslands um skráningar barna í formlegt íþróttastarf.
Hæst er hlutfallið í flokki sex til níu ára barna. 88 prósent drengja og tæp 86 prósent stúlkna eru í íþróttastarfi. Þegar komið er að sextán til sautján ára aldrinum er 51 prósent drengja og fjörutíu prósent stúlkna í íþróttastarfi.
Þegar skráning barna í íþróttir er skoðuð eftir fjölskyldutekjum sést að hlutfallið er lægst fyrir tekjulægri fjölskyldur eða rúmlega 51 prósent en um 76 prósent fyrir fjölskyldur í hæstu tekjutíund. Um er að ræða ráðstöfunartekjur úr skattframtölum einstaklinga sem tengdar eru við einstaklinga í kjarnafjölskyldum.
Þá er munur á þátttöku barna eftir því hvort þau búi á heimili með einu foreldri eða tveimur. Mesti munurinn er á aldrinum þrettán til fimmtán ára.