Sjá má í greininni að Chalamet og föruneyti hans fóru um víðan völl, að rauðbrúnum klettum, strönd með svörtum sandi og að fossi. Ekki kemur fram nákvæmlega hvar myndirnar voru teknar.
Á einni mynd má sjá leikarann með húfu frá íslenska merkinu Coppermine.
Farið var yfir víðan völl í viðtalinu og kemur þar skýrt fram að Chalamet er ekki hrifinn af því að ræða einkalíf sitt. Þar á meðal er samband hans við raunveruleikastjörnuna Kylie Jenner. Einnig tók hann oft fram í svörum sínum að hann vildi ekki líta út fyrir að vera of hrokafullur líkt og þegar hann ræddi ferðalög sín um borð í einkaþotum.
Fyrir viðtalið var hann einnig búinn að taka fyrir fjórar kvikmyndir og eitt leikverk sem hjálpuðu honum í undirbúningnum fyrir myndatökuna sem fór fram á Íslandi. Þar nefndi hann til dæmis kvikmyndina Koyaanisqatsi sem minnti hann á „þá auðmýkt sem maður hlýtur að finna fyrir sem einstaklingur í samhengi við alheiminn“.
„Ég elska að það að vera á brún bjargs á Íslandi sé sama upplifun og að vera í Grand Central,“ sagði Chalamet.
Chalamet varð þekktur eftir leik hans í kvikmyndinni Call Me By Your Name en hefur á síðustu árum leikið Bob Dylan í A Complete Unknown, Marty Mauser í Marty Supreme og Paul Atreides í Dune-kvikmyndunum.