„Það hafa verið skrítnar aðstæður þessa dagana. Það var spáð flughálku og frostregni í gær, sem kom ekki. Það var ekkert frost eða hálka í nótt en svo allt í einu um sjöleytið datt hitinn niður um eina og tvær gráður og þá kom ísing skyndilega,“ segir Karl í samtali við fréttastofu og þá hafi allar vélar verið ræstar út til að sinna vetrarþjónustu á stígum.
Einhverjar hafi þegar verið komnar af stað í efri byggðum.
„En við hefðum mátt vera aðeins fyrr á ferðinni,“ segir hann en að spáin og aðstæður hafi verið skrítnar.
Hann áréttar að vetrarþjónusta á götum hafi verið á réttum tíma en það hafi verið stígarnir sem helsta vesenið var á í morgun.
Aðstæður á stígum voru til umræðu í tveimur færslum í Facebook-hópnum Samgönguhjólreiðum síðustu helgi eftir að snjóaði. Þar voru margir óánægðir með þjónustuna.
„Eftir fyrstu snjókomu eru mestu frávikin, en álit manna er að þetta hafi gengið þokkalega vel fyrir sig þó að það hafi verið einhver frávik.“
Kortleggja frávik
Hann segir starfsmenn búna að kortleggja þessi frávik til að koma í veg fyrir að þau eigi sér ekki stað aftur. Hann segir þannig færslurnar aðeins hafa verið tvær og að fjöldi ábendinga hafi verið í lægra lagi á ábendingavef borgarinnar.
„Það er það sem við horfum til með einkunnagjöf um viðbrögð. Auðvitað var þetta ekki upp á tíu en auðvitað viljum við alltaf gera betur. En miðað við fyrstu snjókomu tókst þetta þokkalega til þó að það hafi verið staðir og atvik sem hefðu mátt gera betur.“
Hann segir helstu frávikin hafa verið við stór gatnamót við Suðurlandsbraut, Laugaveg og Kringlumýrarbraut. Þar hafi verktaki gleymt að fara til að skafa og það hafi skapað erfiðar aðstæður fyrir hjólandi og gangandi. Auk þess hafi einhver frávik verið skráð í Vesturbæ Reykjavíkur og víðar.
„Við ætlum að tryggja að þetta gerist ekki aftur. Eftir svona viðburð setjumst við niður með verktökum og eftirlitsmönnum og reynum að sjá til þess að svona hlutir séu betri í næstu snjókomu. En þetta eru 900 kílómetrar af stígum og það er ansi mikið af fólki sem kemur að þessum, það verða alltaf einhver frávik þó að við vinnum í því að koma í veg fyrir það. Það getur alltaf gerst.
Best að senda ábendingu
Hann reynir sjálfur að fylgjast með umræðu á Facebook en hvetur fólk til að senda ábendingar í gegnum ábendingavef.
„Ég hvet fólk til að senda ábendingar. Það eru ekkert sem eru að vinna í þessu daglega, allir að fylgjast með Facebook þótt ég geri það en þeir bregðast við ábendingum samdægurs. Svo endilega verið dugleg að setja inn á ábendingavefinn. En við erum að fara yfir þetta og ætlum okkur að bæta þessa bletti fyrir næstu snjókomu.“