Vera staðfestir vistaskiptin í samtali við fréttastofu. Hún var valin úr hópi fimmtán sem sóttu um starfið en einn dró umsókn sína til baka. Meðal umsækjenda voru fjórir hlaðvarpsstjórnendur sem bölsótast hafa opinberlega út í nefndina og kröfur hennar um skráningu hlaðvarpa sem fjölmiðla en ætla má að umsóknir þeirra hafi verið lagðar fram í hálfkæringi.
Elfa Ýr Gylfadóttir, sem setið hefur sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar frá stofnun hennar árið 2011, tilkynnti í ágúst að hún myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi skipun eftir lok núverandi skipunartíma hennar, sem rann sitt skeið nú í haust.
„Ég er virkilega spennt fyrir þessu krefjandi verkefni,“ segir Vera í samtali við fréttastofu.
Hún var ráðin framkvæmdastjóri Myndstefs árið 2023 og hefur sinnt því starfi síðan. Vera starfaði áður hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Hún er menntaður lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur víðtæka reynslu af sérfræðistörfum á sviði lögfræði, alþjóðasamskipta og stefnumótunar.
Stuðningur mikilvægur
Aðspurð hvers vegna hún hafi ákveðið að sækja um segist hún hafa fylgst með störfum nefndarinnar frá upphafi og hafi miklar taugar til netöryggismála og fræðslu tengdri þeim. Hún segir fjölmiðlamálin mikilvæg fyrir lýðræðislega umræðu og samfélagið allt á tímum upplýsingaóreiðu og hlakkar til að takast á við verkefnin. Áhersla verði lögð á að styðja við fjölmiðla og eiga í nánu samstarfi við nágrannaríkin.
„Það er mikilvægt að stofnunin framfylgi lögunum en styðji líka við og lyfti undir starf fjölmiðla. Fjölmiðlarnir eru svo mikilvægir í allri þessari upplýsingaóreiðu þannig að ég held að þessi vettvangur sé mikilvægur til að halda utan um og styðja við fjölmiðlana og samstarfið við nágrannaríkin.“
Ekki er komið á hreint hvenær hún hefur störf en Vera segir vonandi eins fljótt og hægt er.
Töluvert hefur verið fjallað um störf nefndarinnar í tengslum við skráningu hlaðvarpa. Aðspurð hvort einhver stefnubreyting verði á þeim málum á hennar vakt segir Vera mikilvægt að skoða undir hvaða kringumstæðum skráning sé þörf en líka hvenær hún sé það ekki.