Réttarhöld hófust í gær, fimmtudaginn 19. nóvember, í Halmstad í Svíþjóð yfir 19 ára manni sem er ákærður fyrir að undirbúa hnífaárás í framhaldsskólanum Sturegymnasiet í nafni Íslamska ríkisins, samkvæmt fréttatilkynningu ákæruvaldsins.
Samkvæmt TV4 var markmiðið að drepa að minnsta kosti 15 manns í skólanum og sverja hryðjuverkasamtökunum hollustu.
Maðurinn var sjálfur nemandi í skólanum og eldhúshnífur fjölskyldunnar átti að verða vopnið, samkvæmt rannsóknargögnum sem sænska ríkisútvarpið SVT hefur fjallað um.
Vildi ráðast á hinsegin fólk
Í yfirheyrslum hjá lögreglu lýsti maðurinn áformum um að drepa hinsegin fólk, að því er fram kemur í umfjöllun Aftonbladet sem byggir á ákæru og rannsóknargögnum.
Hann neitar að hafa gerst sekur um undirbúning hryðjuverks og ber því við að hann hafi hætt við áformin áður en hann var handtekinn. Hann játar hins vegar þátttöku í hryðjuverkasamtökum og opinbera hvatningu til hryðjuverka. Samkvæmt ákærunni fór hvatningin fram á TikTok.
Ábending barst frá útlöndum
Sænska öryggislögreglan Säpo fékk í apríl upplýsingar frá erlendri leyniþjónustu um að maðurinn hefði lýst áformum um ofbeldisverk á samfélagsmiðlum. Hann var handtekinn á heimili sínu 13. apríl.
Verjandi mannsins og hann sjálfur hafa dregið í efa að hann hefði getað framið árásina, en ákærandi er ósammála. Réttarhöldin eiga að standa til 25. nóvember.