Bragi Páll, sem kallar sig stundum séra Braga, brá sér í hlutverk prests, las upp úr bókinni og stjórnaði fjölmennum flautukór gesta sem flutti Queen-smellinn Another One Bites the Dust af mikilli innlifun. Úa, dóttir Braga, flutti jafnframt „Allt eins og blómstrið eina“ á þverflautu.
Bragi Páll er þekktur fyrir að feta ótroðnar slóðir í skrifum sínum og nálgast gjarnan sársaukafyllstu hliðar mannlífsins með miskunnarlausum húmor. Hann hefur áður gefið út bækurnar Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen, Kjöt, Arnaldur Indraðson deyr og Austur.
Nýjasta bók hans er Íslensk óhamingja sem er áleitin, beinskeytt og sprenghlægileg ádeila á íslenskan samtíma og saga um firringu, sveigjanlegan sannleika og tilhneigingu okkar til að flýja okkur sjálf.