Gert var ráð fyrir fimm milljarða króna afgangi á rekstri ríkissjóðs árið 2027. Efnahagshorfur hafa versnað síðan þá og nú hefur Seðlabankinn gefið út spá fyrir árið 2027 þar sem gert er ráð fyrir halla á ríkissjóði upp á tæpa 17 milljarða króna. Er þar miðast við fyrstu útgáfu fjárlagafrumvarpsins sem var kynnt í haust.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur brugðist við þessari spá Seðlabankans en hann segir stjórnvöld hafa verið meðvituð um þróun efnahagshorfa og að þegar hafi verið teiknuð upp áætlun um frekari niðurskurð til að ná markmiðum um hallalaus fjárlög.
Fréttastofa ræddi við Kristrúnu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun en hún segir að horfur um laun og verðlag hafi líka áhrif þegar fjárlögin verða endurskoðuð. Hún var ekki tilbúin til að ræða að svo stöddu að ræða hvaða aðgerða á að grípa til þegar kemur að niðurskurði til að ná fram hallalausum rekstri ríkissjóðs.
„Þetta eru eðlilegar tilfæringar sem eru að eiga sér stað. Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þetta hafi mikil áhrif á daglegt líf miðað við það sem lagt var fram í haust,“ segir Kristrún.
Hún segir Alþingi eiga síðasta orðið um fjárlögin en að það skipti miklu fyrir trúverðugleika ríkisstjórnarinnar að hún standi við loforð sín.
„Okkur er að takast að kæla kerfið“
Seðlabankinn benti á í vikunni að útlit sé fyrir að einkaneysla muni aukast minna en áður var talið, sem mun þýða minni tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti.
Kristrún segir stjórnvöld þegar hafa tekið mið af því að einkaneyslan vaxi hægar.
„Hugmyndin á bak við það að kæla kerfið er auðvitað að það hægi á hlutunum. Þenslan sem hefur verið til staðar hefur gert það að verkum að hér hafa verið allt of háir vextir og allt of há verðbólga. Okkur er að takast að kæla kerfið. Við þurfum auðvitað að passa upp á þetta jafnvægi, eins og ég sagði, á milli vinnumarkaðarins og eftirspurnar í hagkerfinu. En það getur ekki gengið upp að vera með mikinn hagvöxt á sama tíma og þú ætlar að reyna að minnka þenslu,“ segir Kristrún og bætir við:
„Ég ætla bara að leyfa mér að vera vongóð um að þær aðgerðir sem við erum að grípa til muni virka. Núllið stendur, núllið heldur. Við erum kletthörð á því og vonandi horfum við bara upp á bjartari tíma með vaxtalækkunum og að verðbólga fari niður á við núna á næstu mánuðum eins og allar spár benda núna til.“
Vill nýta starfsmannaveltu til að fækka ríkisstarfsmönnum
Seðlabankinn benti einnig á að á meðan störfum fækkar í einkageiranum fjölgi þeim hjá hinu opinbera, sem á bæði við um ríkið og svo sveitarfélög. Kælingin sem verið sé að reyna að ná fram virðist því ekki ná til hins opinbera.
„Nú hef ég ekki séð niðurbrot á þessum nýjustu tölum en ég veit fyrir víst að sú mikla aukning sem varð í starfsfólki eða hjá starfsfólki hjá hinu opinbera á vegum ríkisins síðustu ár hefur snarstöðvast eða það hefur hægst verulega á því. Raunar er það þannig að þau fáu störf sem hafa bæst við hafa fyrst og fremst bæst við fyrir utan höfuðborgarsvæðið þar sem hefur oft verið krafa um meiri þjónustu og frekari störf. Þannig að það er allt önnur þróun í gangi hjá þessari ríkisstjórn en þeirri síðustu en ég þekki ekki alveg niðurbrotið milli ríkis og sveitarfélaga á nýjasta mati Seðlabankans.“
Kristrún segist ekki geta svarað því fyrir allar ríkisstofnanir hvort til frekari uppsagna komi. Ríkisstjórnin hafi sett sér það markmið að fækka ríkisstarfsmönnum um eitt prósent en það skipti máli hvernig það sé gert.
„Mikið af því er hægt að gera með starfsmannaveltu, það er hægt að gera það yfir einhvern tíma og það þarf alltaf að passa upp á þetta jafnvægi að ríkið og opinberar stofnanir séu líka bara vinnustaðir, þarna vinnur fólk og fólk þarf auðvitað að geta verið svona öruggt í sinni vinnu en það eru eðlilegar kröfur gerðar.“