Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á miðvikudag verklag varðandi niðurrif fjögurra húsa og sprunguviðgerðir við Vesturhóp en þar féll Lúðvík Pétursson í sprungu í janúar árið 2024. Leit að jarðneskum leifum Lúðvíks, strax í kjölfar slyssins og svo aftur í október síðastliðnum, skilaði ekki árangri.
Í bókun bæjarráðs segir að sprunguviðgerðum verði hagað á þann hátt að aðstæður geti skapast aftur til leitar. Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur segir að lögð verði áhersla á að nálgast framkvæmdina af virðingu og nærgætni.
„Sprunguviðgerðir eru afar umfangsmiklar framkvæmdir og mjög tæknilegar og við teljum einfaldlega að eins og við leggjum út framkvæmdina þá geti mögulegar aðstæður skapast til leitar. Það er vilji okkar allra að það geti mögulega raungerst,“ segir Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur í samtali við fréttastofu.
Lögreglan tekur við ef aðstæður skapast til leitar
Á meðal gagna sem lágu fyrir við ákvörðun bæjarráðs var bréf frá fjölskyldu Lúðvíks og þá funduðu bæjaryfirvöld með fjölskyldunni þann 10. nóvember. Enn á eftir að bjóða út framkvæmd vegna niðurrifs húsa og sprunguviðgerða.
„Sprunguviðgerðir í Grindavík eru í höndum forsætisráðuneytis og er samvinnuverkefni forsætisráðuneytis, Vegagerðarinnar og Grindavíkurbæjar. Grindavíkurbær hefur svolítið tekið forystu hvað þetta varðar og verður í samskiptum við fjölskyldu Lúðvíks þannig að við leggjum þessa línu svolítið hérna skýrt,“ bætir Pétur við.
Þann 27. október síðastliðinn tilkynnti lögreglan, eftir að sigmenn höfðu sigið niður í sprunguna og framkvæmt sjónleit, að allri leit yrði hætt þar sem engar vísbendingar hefðu fundist um hvar líkamsleifar Lúðvíks væri að finna.
„Skapist aðstæður til leitar þá er það þannig að lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekur yfir vettvanginn aftur og hefur þá leit. Þá stoppar framkvæmdin og um þetta höfum við fundað með lögreglustjóranum og það eru allir sammála um þessa nálgun.“