Þetta kemur fram í tilkynningu undirritaðri af Merði Áslaugarsyni, framkvæmdastjóri 1984 ehf.
„Umfang árásarinnar er enn til rannsóknar og ekki er unnt að útiloka að fleiri kerfi hafi orðið fyrir áhrifum en þegar hefur verið staðfest. Í ljósi alvarleika stöðunnar hefur 1984 ehf. tekið þá erfiðu ákvörðun að stöðva tímabundið alla þjónustu fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni.
Sú ákvörðun sé tekin í öryggisskyni til að takmarka möguleg frekari áhrif árásarinnar. DNS og póstþjónustur komi fljótlega upp aftur. Fram kemur að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi tilkynnt atvikið til CERT-IS sem aðstoðar við rannsókn, afmörkun atviksins og með viðeigandi viðbrögðum.
„Ekki er að svo stöddu hægt að segja til um hvenær allar þjónustur verða komnar í eðlilegt horf. Forgangsmál er að tryggja öryggi kerfanna áður en starfsemi verður hafin að nýju.“
Stór bilun kom upp hjá 1984 ehf. árið 2017 sem varð til þess að leigubílafyrirtækið BSR þurfti að taka upp talstöðvarsamskipti á ný. Fjölmargir íslenskir vefir og pósthólf lágu sömuleiðis niðri vegna bilunarinnar.
Meðal vefsíða sem 1984 ehf. hýsir er síða sem kortleggur gyðinga búsetta í Bandaríkjunum og lögpersónur tengdar þeim. Anti Defamation League, ADL, fór fram á lögbann við hýsingu síðunnar sem var hafnað.