Hýsingarfyrirtækið 1984 ehf. hefur orðið fyrir umfangsmikilli og alvarlegri tölvuárás. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu fyrirtækisins og netöryggissveitarinnar CERT-IS. Sú erfiða ákvörðun var tekin í framhaldinu að stöðva tímabundið alla þjónustu fyrirtækisins. Reiknað er með að DNS og póstþjónusta komist fljótt aftur í gagnið og verður þá starfrækt undir sérstöku eftirliti. Aðrar þjónustur verða ekki teknar aftur í notkun fyrr en að loknum öryggisráðstöfunum og sannprófunum. Tilkynningin er eftirfarandi:
Stöðva þjónustu tímabundið eftir alvarlega tölvuárás á innviði 1984 ehf.