Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, sagði á blaðamannafundi í morgun að búið væri að bera kennsl á eina stýriflaugina og að hún hefði verið af gerðinni Kh-101. Hinir tveir hlutirnir eru til rannsóknar. Hann sagði þó talið að um aðra eldflaug og dróna sé að ræða.
Í heildina fylgdust Pólverjar með ellefu eldflaugum og drónum sem talið er að hafi verið flogið nærri eða inn í lofthelgi landsins.
Eldflaugarnar og dróninn flugu yfir Úkraínu en Rússar gerðu eina umfangsmestu árásina hingað til á Úkraínu í nótt og í morgun. Að minnsta kosti átta eru látnir í Úkraínu og margir eru særðir.
Sjá einnig: Létu skotflaugum rigna á brýr í Kænugarði
Á blaðamannafundinum í morgun sagði ráðherrann að um enn eina ögrun Rússa væri að ræða. Það væri ekki tilviljun að þetta hefði gerst á sama tíma og hermenn Atlantshafsbandalagsins væru við æfingar á þessu svæði.
Sagðist hann ætla að ræða málið við Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, og þá meðal annars hvort Pólverjar gætu fengið liðsauka.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, boðaði í morgun ráðherra og forsvarsmenn herafla landsins á sinn fund vegna málsins.
W związku z naruszeniem polskiej przestrzeni powietrznej zwołałem naradę z udziałem ministrów, przedstawicieli Wojska Polskiego oraz szefów służb. https://t.co/rlK79MJl02
— Donald Tusk (@donaldtusk) November 20, 2026
Eldflaugarnar og dróninn féllu til jarðar í Mołodycz, Rudnik nad Sanem og Nowy Lipowiec.
Ekki er útlit fyrir að einhvern hafi sakað eða að innviðir hafi skemmst.
Hér að neðan má sjá myndefni frá Póllandi í morgun.
Two Russian missiles and a jet drone fell in Poland during Russia's massive attack on Ukraine, Defense Minister Kosiniak-Kamysz says. He calls it another provocation. Polish military logged 11 air targets in total that could have violated the country's airspace, he adds. https://t.co/7WRIGwyvvz
— WarTranslated (@wartranslated) November 20, 2026