Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs Grindavíkur frá því á miðvikudag en í lok október tilkynnti lögreglan á Suðurnesjum að allri leit að Lúðvík skyldi hætt eftir að engar vísbendingar fundust í aðgerð lögreglu. Leitin fól í sér að leitarmenn sigu ofan í sprunguna við Vesturhóp í Grindavík og framkvæmdu skoðun.
„Við leitina fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar er að finna,“ sagði þá í tilkynningu lögreglu sem sagði að þá hafi þeim aðgerðum verið lokið sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum taldi unnt að ráðast í á grundvelli fyrirliggjandi áhættumats.
Í færslu á Facebook þann 2. nóvember sagði Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, að ákvörðun lögreglunnar væri vonbrigði. Skrifaði hann þá að aðeins eftir aðgerðina hafi fjölskyldunni verið tjáð að aðgerðin væri afmörkuð við sjónskoðun og myndavélar og að frekari aðgerðir hefðu aðeins komið til greina ef vísbendingar hefðu fundist með sjónskoðun.
Í kjölfarið sendi fjölskyldan bréf til Grindavíkurbæjar sem er á meðal þeirra gagna sem vísað er til í bókun bæjarráðs. Í bókuninni segir að með vísun til gagna, meðal annars minnispunkta frá fundi Grindavíkurbæjar með fjölskyldu Lúðvíks þann 10. nóvember, samþykki bæjarráð fyrirhugað verklag varðandi niðurrif fjögurra húsa við Vesturhóp.
„Bæjarráð samþykkir jafnframt, f.h. Grindavíkurbæjar, fyrirhugað verklag varðandi sprunguviðgerð í Stamphólsgjá og leggur áherslu á að sprunguviðgerð verði hagað á þann hátt að aðstæður geti skapast aftur til leitar til að endurheimta líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar á öruggan hátt. Fyrirhugað verklag hefur verið rætt á fundi með fjölskyldu Lúðvíks Péturssonar og einnig með lögreglustjóra og forsætisráðuneyti og voru aðilar sammála um hvernig staðið verði að framkvæmd og öryggi á vettvangi,“ segir í færslunni.
Jafnframt leggur bæjarráð á að fjölskylda Lúðvíks verði reglulega upplýst um stöðu framkvæmda og verði gefinn kostur á að setja fram ábendingar ef tilefni þyki til.