Hingað til hefur Suðurnesjalína 1 verið eina flutningsleið raforku milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Með Suðurnesjalínu 2 fá Suðurnesin aðra tengingu sem eykur afhendingaröryggi og flutningsgetu til og frá svæðinu.
„Þetta er mikill gleðidagur og undirbúningurinn er auðvitað búinn að taka langan tíma en við erum hér og nú og núna erum við að fara að spennusetja Suðurnesjalínu 2, samfélagi og atvinnulífi til hagsbóta. Þetta er bæði aukinn flutningur inn á svæðið en auk þess er þetta líka bætt afhendingaröryggi og áfallaþol þannig að það er margvíslegur ávinningur af þessari framkvæmd,“ sagði Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets.
Suðurnesjalína 2 er 220 kílóvatta háspennulína milli tengivirkjanna í Hamranesi í Hafnarfirði og á Njarðvíkurheiði. Hún er um 30 kílómetra löng, að mestu loftlína en með jarðstreng nær Hamranesi.
Saga framkvæmdarinnar nær aftur til ársins 2009 og hefur einkennst af kærum, dómsmálum og ágreiningi um eignarrétt svo dæmi séu tekin. Mikil þrautaganga sé að baki.
„Jú, heldur betur. Þetta er búið að taka langan tíma og allt of langan tíma en við ætlum að draga lærdóm af þessu en það geta líka fleiri aðilar, opinberir aðilar líka, það þarf bara að skoða hvort að svona málsmeðferð sé yfirhöfuð ásættanleg. Þannig að það er bara verkefnið.“
Línan verður gangsett klukkan 16 síðdegis.
„Við ætlum að halda upp á þetta og ætlum að vera í Keflavík og gangsetja línuna og þar kemur fjármála- og efnahagsráðherra og leggur okkur lið með það en líka sveitarstjórnarmenn og ýmsir sem hafa komið að framkvæmdinni. Þetta er búið að vera, eins og við vitum, langur aðdragandi og mörg sem komu að þessu verki þannig að við ætlum að fagna, heldur betur.“