Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá andláti Broadway sem lést á þriðjudaginn en dánarorsök hans liggur ekki fyrir.
Samkvæmt skýrslu réttarlæknis þá lést Broadway á stigagangi íbúðarhúss í Dallas í Texas. Lögreglunni í Dallas barst tilkynning um að lík hans hefði fundist um sjöleytið að staðartíma.
Lance Daniel Broadway fæddist 20. ágúst 1983 í Bryan í Texas, var snemma efnilegur hafnaboltamaður og var valinn fimmtándi í nýliðavalinu árið 2005 af Chicago White Sox. Hann varði mestum tíma hjá neðrideildarliði White Sox en þreytti frumraun sína með liðinu í september 2007. Eftir nokkra leiki fyrir liðið færði hann sig yfir til New York Mets árið 2009 áður en hann endaði ferilinn hjá Toronto Blue Jays sama tímabil.
Broadway heillaðist af leiklist eftir að hafa tekið nokkra leiklistartíma og þreytti frumraun sína á stóra skjánum í hasarmyndinni Olympus Has Fallen (2013) með Gerard Butler og Morgan Freeman.
Hann spilaði örhlutverk í nokkrum sjónvarpsþáttaseríum, svo sem Kevin from Work Grinder (2015), Lucifer (2016) og Agents of S.H.I.E.L.D. (2016). Broadway hafði þó ekki leikið í nokkur ár og starfaði síðast við að þjálfa unga hafnaboltamenn til að undirbúa þá undir háskólaboltann.