Útlit er fyrir að leiðtogafundur Evrópusambandsins og Bretlands í Brussel í dag skili raunverulegum árangri, segja embættismenn frá leiðtogaráði ESB sem ræddu við blaðamenn í morgun. „Við erum að búast við að leiðtogarnir staðfesti niðurstöðu í mikilvægum viðræðum sem hafa átt sér stað að undanförnu,“ sagði einn þeirra.
Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands verður á fundi með Antonio Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, þar sem búist er við að leiðtogarnir staðfesti samkomulag um að auðvelda til muna flutning á matvælum og dýraafurðum yfir Ermarsundið. „Kröfur um langflest vottorð og skýrslur verða afnumdar, sem mun létta lífið fyrir framleiðendur og auka val neytenda,“ sagði einn embættismaður í Brussel í morgun.
Hangir á samkomulagi um jöfnun skólagjalda
Embættismenn sem ræddu við fjölmiðla í Brussel í morgun, segja að einnig sé stefnt að því að staðfesta samkomulag um að tengja saman kerfi losunarheimilda; nokkuð sem skiptir miklu máli fyrir fyrirtæki beggja vegna Ermarsundsins, og að opna fyrir möguleikann á að eitt hundrað þúsund ungmenni frá hvorri hlið geti búið og starfað í Bretlandi og aðildarríkjum ESB.
En allt þetta hangir hins vegar á því að Bretar samþykki að jafna skólagjöld fyrir háskólastúdenta, sögðu embættismenn í Brussel í morgun. „Ég get staðfest að það verður ekki skrifað undir neitt fyrr en það samkomulag liggur fyrir,“ sagði einn þeirra í morgun og bætti því við að gert væri ráð fyrir að það tækist innan sex mánaða.