Njálufélagið býður til Njáluþings í salnum í dag frá 15 til 18 og kostar 1.500 krónur inn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, stjórnarmaður í Njálufélaginu, mun stýra þinginu og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og Njálusérfræðingur, mun opna þingið með ávarpi áður en Jón Karl Helgason, Ólína Þorvarðardóttir og Ragnhildur Richter flytja erindi. Síðan verða bókakynningar á þremur nýjum útgáfum af bókinni sem sýna hver ólíka hlið á sögunni, tónlistaratriði og léttar veitingar.
Hjörleifur Hjartarson í Hundi í óskilum hefur útbúið Njálu á hundavaði sem er létt og snaggaraleg endursögn með myndlýsingum Ránar Flygenring.
Þá eru komnar út tvær af stærstu perlum menningararfsins, Njálsbrenna og Grettissaga, í formi veigamikilla myndasagna eftir Halldór Pétursson og Kristján J. Gunnarsson.
Loks er endurútgefin Njála í klassískum frágangi Jóns Böðvarssonar með teikningum Þórhildar Jónsdóttur.
Ólína Kjerúlf mun fjalla um harm Hildigunnar Starkaðardóttur, Ragnhildur Richter fullvissar gesti um að krakkar vilji lesa Njálu og svo rifjar Jón Karl Helgason upp þegar Njála var bönnuð vegna ofbeldisatriða.
„Núna hefur það gerst að ég veit hver skrifaði hana“
Stærstu tíðindin eru sennilega þau að Guðni Ágústsson hyggst afjúpa hver hinn raunverulegi höfundur Njálu var en hann sagði frá því í viðtali á Bítinu í gær.
„Ég hef elskað hana frá því ég var barn en núna hefur það gerst að ég veit hver skrifaði hana,“ sagði Guðni um Njálu.
Ætlarðu að upplýsa um það?
„Ég ætla að upplýsa það í Salnum og ég ætla ekki að segja hvort það er draumur eða vitrun eða hvort ég hafi fundið það í blöðum. Ég mun upplýsa um höfund Njálau,“ sagði Guðni.
Mun það koma á óvart?
„Mjög. En það munu allir sjá, eins og Njáll sagði: Þegar ég segi frá þessu, að þetta er hið rétta,“ sagði Guðni en hægt er að hlusta á viðtalið við hann og Hjörleif Hjartarson hér að neðan: