Rússlandsher drap átta manns, hið minnsta, í árásum á Úkraínu í nótt. Úkraínuforseti segir þetta einar mestu árásir Rússa síðan þeir hófu innrásarstríðið. Eitt flugskeyti Rússa fannst í Póllandi.
Rússlandsher skaut 110 flugskeytum á Úkraínu í nótt og drap sex manns í höfuðborginni Kyiv og tvo í borginni Lviv í vesturhluta Úkraínu, langt frá víglínunni. Pútín Rússlandsforseti hafði hótað Úkraínumönnum sársaukafullum viðbrögðum við árásum þeirra á Kerch-brúna í vikunni sem tengir Krímskaga við meginland Rússlands.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sagði að árásirnar í nótt hafi verið einar þær mestu síðan Rússar hófu allsherjarinnrás 2022. Víða varð rafmagnslaust því flugskeytin hæfðu orkumannvirki. Þá réðust Rússar á þrjár brýr í Kyiv. Margir borgarbúar leituðu skjóls í jarðlestarstöðvum. Fólk tók með sér útilegustóla og lítil tjöld til að sofa í. Stjórnvöld í Úkraínu segja að 15 séu særðir eftir árásirnar.
Stjórnvöld í Frakklandi hafa lagt til að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna verði kallað saman í dag vegna árásanna. „Kreml hefur ráðist á Kyiv aftur. Almennir borgarar voru drepnir,“ skrifaði Jean-Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, í færslu á X í dag. „Ég hef lagt til að Öryggisráðið fundi. Rússar þurfa að svara fyrir gjörðir sínar.“
Loftvarnaflautur glumdu við í nótt í borginni Lublin í Póllandi. Stjórnvöld í Póllandi segja að eitt flugskeyti, hið minnsta, hafi hæft suðausturhluta Póllands í árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Verið er að rannsaka vettvanginn og mögulegt er talið að annað flugskeyti og einn árásardróni hafi lent í Póllandi.