Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, var í viðtali í Bítinu í morgun þar sem fram kom að hann telur eftirlit með plastbátum hér á landi í molum. Hafði hann áður skrifað grein þar sem hann lýsti áhyggjum sínum af viðhaldi bátanna og sagði suma þeirra ekki ættu að hafa haffærisskírteini.
Þráinn hóf störf í skipasmíðastöðinni árið 2014 og varð hann fljótt var við að bátar væru að brotna á skrýtnum stöðum. Hann hafi sent ábendingar til Samgöngustofu líkt og honum beri skylda til án þess að fá viðbrögð. Að hans mati þurfi einfaldlega að taka báta úr umferð.
„Skip er í rauninni ekkert annað en fyrirtæki þar sem menn vinna og það er stór ákvörðun að stoppa það. Ég vil taka fram að samskipti mín við Samgöngustofu hafa í flestum tilfellum verið með ágætum en í þessu þá virðast þeir ekki hafa getu til að taka á málinu,“ sagði Þráinn í Bítinu í morgun.
„Ef þetta væri stálskip væri það svipt haffæri umsvifalaust“
Hann segir að upphaflega hafi þessir bátar verið litlir dagróðrarbátar eins og almennt þekkist sem strandveiðibátar í dag. Síðan hafi þeir stækkað þegar krókaaflamarkskerfið var búið til því bátarnir þurftu að passa í þann flokk. Þar gildi sérstök reikniregla sem segi að bátarnir megi vera þrjátíu brúttótonn og að hámarki fimmtán metra langir.
Þráinn telur að engir bátar, sem eru á milli tíu og fimmtán metrar á lengd og hafa verið smíðaðir hér á landi frá árinu 2000, ættu í raun að vera með haffærisskírteini. Hann viðurkennir að þetta séu stór orð.
„Ég hef rökstutt það með því að Samgöngustofa virðist ekki hafa örugga vissu fyrir því að bátarnir séu í þeim styrkleika sem reglur krefjast og hafi ekki fylgt því eftir. Ef þú hefur efasemdir um styrkleika eða sjóhæfni báta þá ber mönnum að svipta þá haffæri, það er bara stóralvarlegt.“
Þessi staða hafi viðgengist lengi og Þráinn segir að dæmi séu um að þessum bátum hlekkist á, strandi eða verði fyrir ásiglingu. Þá fari þeir einfaldlega mjög illa.
„Við vitum um töluvert af bátum sem hafa komið til okkar á undanförnum árum sem eru alveg niður í að vera bara þrjátíu prósent af þeirri þykkt sem þeir ættu að vera. Ef þetta væri stálskip væri það svipt haffæri umsvifalaust.“
Lítið um svör frá Samgöngustofu
Þráinn segist ekki geta fullyrt að allir bátar séu of þunnir en samkvæmt hans upplýsingum sé Samgöngustofa ekki með upplýsingar um þykkt þeirra.
„Við höfum séð dæmi um að á nánast nýjum bátum séu stýrin að brotna af ítrekað. Ég hef rætt þetta við stofnunina og sendi þeim formlegt bréf í september í fyrra um hvort það séu til einhverjir útreikningar á vélarundirstöðum eða stýrisbúnaði en ég hef bara ekki fengið nein svör.“
Einnig tók hann dæmi um bát sem kom óskemmdur til Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur. Þegar hann var tekinn í upptökuvagn hafi hann gefið sig niður í kjölinn og komið hafi í ljós að þykkt hans hafi einungis verið þrjátíu og fimm prósent af því sem hún ætti að vera.
„Starfsmenn Samgöngustofu voru kallaðir til, þeir komu og haldinn var fundur um borð. Allt var skoðað og mælt og það var haft samband við hönnuð bátsins sem staðhæfði að báturinn hafi átt að vera tuttugu og átta millimetrar að þykkt en hafi verið tíu.“
Þegar fundinum var lokið hafi hann spurt hvert framhaldið yrði og þá hafi verið fátt um svör. Sjálfur hafi hann viljað fá fyrirmæli um hvernig ætti að klára málið.
„Þá sneri einn starfsmaðurinn sér við og sagði við mig að hafa þetta ekki þynnra en það er og glotti. Síðan hefur ekkert verið gert í málinu og þessi sami bátur er búinn að brotna aftur í kjölinn, annars staðar reyndar.“
„Ég hef verið að kvarta yfir því en fæ engin viðbrögð“
Sem betur fer sé ekki vitað til þess að slys hafi orðið á sjó sem rekja mætti til þessara vandamála. Hins vegar nefnir Þráinn eftirlit Samgöngustofu í tengslum við það þegar báturinn Ormurinn langi fórst með þeim afleiðingum að einn lést.
„Honum hafði klárlega verið breytt töluvert og nú er komið í ljós að það var gert án þess að það væri tilkynnt til Samgöngustofu eða eftirlits með breytingunum. En þetta á bara við um töluverðan hluta flotans. Ég hef verið að kvarta yfir því en fæ engin viðbrögð.“
Hann hafi haft áhyggjur af stöðunni og einnig verið mjög gagnrýninn á breytingar á skrokkum báta.
„Þetta á að breyta mælingum bátanna og við vitum ekki hvaða áhrif þetta hefur á sjófærni skipanna. Ég hef borið upp þá spurningu við stofnunina hvort þetta geti verið hugsanlegt að þetta geti verið hættulegt í einhverjum tilfellum, meðal annars í tilfellinu með Orminn langa. Ég skil Rannsóknarnefnd samgönguslysa þannig að hún hafi ýjað að því eða frekar tekið undir að þetta hafi í það minnsta ekki hjálpað bátnum,“ segir Þráinn.
Starfsmenn þurfi öruggt bakland yfirmanna ef það á að taka á vandanum
Hann ítreki að ákvörðunin sé stór að stöðva bát og mikið lagt á starfsmenn á siglingasviði Samgöngustofu að stoppa bát, því stofnunin hafi upphaflega tekið bátinn í upphafsskoðun og gefið haffæri.
„Þeir eiga erfitt og eru stöðugt að auglýsa eftir fólki. Það hefur gengið illa að manna eins og á mörgum svona sérsviðum. Þarna er vel menntað og vel meinandi fólk sem er að gera sitt besta. Það vantar kannski grunninn og starfsreynsluna úr þessum geira.“
Á þessu þurfi yfirmenn og jafnvel ráðherrar að taka.
„Ef fólk kemst upp með að gera hlutina bara með annarri hendi þá gerir það það. Ef það er enginn sem stoppar og engin viðurlög. Eftirlitið þarf að vera virkt.“
Hann segist aldrei hafa viðrað áhyggjur sínar við ráðuneytið og viti ekki afstöðu ráðherra. Ef það á að taka á þessu þurfa starfsmenn stofnunarinnar að vera með öruggt bakland sinna yfirmanna, hvort sem það er hjá stofnun eða ráðuneyti.“