Tveir stjórnendur á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 voru látnir fara í morgun vegna framleiðslu þáttanna Allir elska Rasmus. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjónvarpsstöðinni. Það eru dagskrárstjórarnir Ulla Pors og Dorthe Thirstrup.
Um fátt annað hefur verið meira rætt í Danmörku síðustu vikur en þættina. Í þeim er ungum leikara, Rasmus Wallbridge, talin trú um að hann og besti vinur hans séu að fara að búa til kvikmynd sem þeir hafa lengi látið sig dreyma um að gera. Það sem Wallbridge veit ekki er að það er ekki verið að gera kvikmynd heldur þætti um hann að halda að hann sé að gera kvikmynd. Allir þeir 149 sem komu að gerð þáttanna vissu að verið væri að blekkja hann.
Þættirnir voru harðlega gagnrýndir og þeir sem að þeim komu sakaðir um að hafa lagt Wallbridge í einelti og að TV2 hafi leikið sér að andlegri heilsu leikarans með því að setja hann í þessar aðstæður og leyfa öðrum að horfa á. Anne Engdal Stig Christensen forstjóri TV2 segir að stöðin taki réttmætri gagnrýni alvarlega. Sjónvarpsefni verði að þjóna almenningi, sýna mannlega tillitssemi og byggja á sameiginlegum skilningi Dana á siðferði. Til stendur að ráða nýja yfirmenn í stað þeirra sem voru látnir fara og reyna að byggja aftur upp traust áhorfenda.
Þáttunum hefur verið líkt við söguþráð bandarísku kvikmyndarinnar Truman Show. Gerð þeirra tók fjóra mánuði. Þættirnir hafa verið teknir af dagskrá.