Á heimilum um allt land hafa farið fram samningaviðræður þar sem karlmenn, oftar en ekki, grátbiðja eiginkonur sínar um að fá að spila nýja tölvuleikinn langt fram á nótt. Þáttastjórnandi fékk til að mynda leyfi frá kærustunni eftir boð um gull og græna skóga.
Þegar allt leit út fyrir að tölvuleikjaspilun gæti hafist steig þó Helga Braga Jónsdóttir inn sem Vera Dögg og lagði blátt bann við tölvuleikjaspilun. Neyddist því þáttastjórnandi til að grátbiðja Veru Dögg um leyfi.
Útkomuna má sjá í spilaranum hér að ofan en Helga Braga lætur sjá sig í lok þáttarins. Samningaviðræður við kærustuna fara fram um miðjan þátt. Þar reyndist klukkutími í GTA dýrkeyptur.
Auðvitað er um grín að ræða enda hafa fjölmargir, af öllum stærðum og gerðum, áhuga á að spila leikinn ofbeldisfulla en ekki einungis karlmenn. Grínið er að sjálfsögðu vísun í hið löngu sígilda grínatriði Fóstbræðra þar sem Benedikt Erlingsson og fyrrnefnd Helga Braga fara á kostum. Hér fyrir neðan má sjá upprunalegu útgáfuna af gríninu.
Eftirvæntingin fyrir leiknum hefur verið gríðarleg. Það var til að mynda fjölmennt í útgáfuhófi hjá Elko og hefur ekki sést til jafn margra hettuklæddra karlmanna bíða í röð síðan að aðalmeðferð hófst í Landsbankamálinu.
Fóstbræður endurgerðu áðurnefnt grínatriði á dögunum í tilefni 40 ára afmæli Stöðvar 2. Þar fáum við að sjá eldri útgáfu af Veru Dögg og Erlingi þar sem þau eru komin í hjónabandsráðgjöf.