Kokkalandslið Íslands hélt til Lúxemborgar í gær, fimmtudaginn 19. nóvember, þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary World Cup. Fram undan er eitt stærsta verkefni íslenskrar keppnismatreiðslu, en að baki liggja margir mánuðir af þrotlausum æfingum, undirbúningi og skipulagningu.
Fram undan eru tveir stórir keppnisdagar. Fyrri keppnisdagurinn er á morgun, laugardaginn 21. nóvember, þegar liðið keppir í Restaurant of Nations og framreiðir þriggja rétta máltíð fyrir 110 gesti. Þriðjudaginn 24. nóvember tekur síðan við Chefs Table-keppnin.
Nú er komið að stóru stundinni sem þið hafið beðið eftir og æfingarnar hafa eflaust kostað blóð, svita og tár. Hvað er ykkur efst í huga eftir æfingatörnina?
„Það sem er okkur efst í huga er þakklæti fyrir þann stuðning sem við höfum fengið á þessu tímabili frá fjölskyldum okkar, stuðningsaðilum og öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg í þessu verkefni,“ segir Georg.
Hefur allt gengið snurðulaust fyrir sig eða hafa einhverjar uppákomur orðið?
„Það er nú bara þannig að í verkefni sem þessu kemur alltaf eitthvað upp á. En þetta frábæra lið, sem við erum svo heppnir að hafa í kringum okkur, hefur tekist á við allar þær áskoranir og flækjur sem hafa komið upp,“ segir Georg og bætir við: „Það má segja að ferlið sjálft snúist að miklu leyti um að leysa vandamál. Þau lið sem ná að leysa flest vandamálin og halda ró sinni þegar á reynir eru þau sem ná langt í keppninni.“
Íslenskur þorskur og íslenskt lamb í forgrunni á diskum dómnefndar
Fyrri keppnisdagurinn er á morgun. Eruð þið tilbúnir að svipta hulunni af matseðlinum?
„Já, loksins getum við ljóstrað því upp. Í forrétt ætlum við að bjóða upp á íslenskan þorsk með wasabi frá Nordic Wasabi. Í aðalrétt verðum við með íslenskt lamb með innbökuðum humri og í eftirrétt bjóðum við upp á eftirrétt úr súrmjólk og sólberjum, með pistasíum og perum,“ svarar Georg og brosir breitt.
Hvað munið þið bjóða upp á á seinni keppnisdeginum?
„Í Chefs Table-greininni erum við með margrétta veislu fyrir tíu gesti og tvo dómara. Þar ætlum við að bjóða upp á það besta sem Ísland hefur upp á að bjóða, allt frá okkar frábæra fiski yfir í villtar jurtir og ber, ásamt mjólkurvörum í heimsklassa.
Greinin er sett upp þannig að gestirnir sitja við langborð fyrir framan keppniseldhúsið. Þar verður einnig súkkulaðiskúlptúr sem liðsmenn hafa unnið að og undirbúið. Gestirnir fá fyrst brauð og meðlæti, síðan pinnamat og því næst fiskafat þar sem við bjóðum upp á bleikju og reykta ýsu ásamt ýmsu meðlæti og sósum.
Þá tekur við grænmetisréttur þar sem íslenskar rófur leika aðalhlutverkið. Að því loknu fá gestirnir aðalrétt þar sem dádýr er skylduhráefnið. Veislunni lýkur síðan með eftirrétti og konfekti.
Í Chefs Table-greininni fáum við tækifæri til að sýna listræna sköpun og hönnun. Þar þurfum við einnig að velja ákveðið þema, sem hjá okkur er Highlands of Iceland eða Hálendi Íslands. Við sóttum innblástur í ljósmyndir eftir Ragnar Axelsson (RAX) og nýttum þær til að finna form og mynstur sem birtast í náttúru hálendisins.“
Í framsetningu réttanna nýtir landsliðið einnig handgerða leirdiska frá Aldísi Báru, handblásið gler frá Anders hjá Reykjavík Glass og útskorna viðardiska frá Fjöl Workshop.
„Fyrir fiskafatið leituðum við síðan til sjónlistamannsins Péturs Geirs,“ bætir Georg við.
Í Chefs Table-keppninni takið þið allt hráefnið sem þið þurfið með ykkur að heiman?
„Já, við tökum allt hráefnið með okkur að heiman, að undanskildu dádýrinu fyrir aðalréttinn, en það er skylduhráefni sem mótshaldarinn útvegar.
Allt hráefnið sem við tökum með okkur er valið af kostgæfni og má með sanni segja að það sé draumahráefnið okkar. Við teljum það endurspegla það besta sem landið okkar hefur upp á að bjóða og viljum sýna fram á gæði og fjölbreytileika íslensks hráefnis.“
Aðstoðarfólkið gegnir lykilhlutverki í keppninni
Í keppni af þessari stærðargráðu eru áskoranirnar margar og Georg tekur undir að margt þurfi að hafa í huga. Góður undirbúningur skipti þar sköpum.
„Í keppni sem þessari eru áskoranirnar ófáar. Við trúum því hins vegar að sú vinna sem við höfum lagt í undirbúninginn muni skila sér þegar vandamálin koma upp. Kokkalandsliðið okkar er gríðarlega samheldið og liðsmenn styðja hver annan vel þegar á reynir. Það er einn af okkar stærstu styrkleikum.“
Hverjir eru helstu styrkleikar ykkar?
„Helstu styrkleikar okkar felast annars vegar í gríðarlega reynslumiklu liði og hins vegar í sterkum hópi aðstoðarfólks sem stundum gleymist að nefna, en er engu að síður jafn stór hluti af liðinu og keppendurnir sjálfir.“
Vonast til að hráefnið skili sér heilt til Lúxemborgar
Ykkur er spáð einu af þremur efstu sætunum. Er liðið ekki ákveðið í að fara alla leið og er sigurviljinn til staðar?
„Já, liðið náði þriðja sæti á síðustu Ólympíuleikum og var aðeins örfáum stigum frá fyrsta sætinu. Við förum inn í þetta mót betur undirbúin, með frábæran liðsanda og gríðarlega mikinn þorsta í að taka fyrsta sætið,“ segir Ísak Aron, sem fer ekki leynt með sigurviljann.
„Þetta hefur verið langt og strangt æfingaferli. Síðustu tvær æfingar okkar fyrir mótið gengu gríðarlega vel, bæði hvað varðar undirbúning og framkvæmd réttanna. Nú er bara að vona að allt hráefnið skili sér heilt til Lúxemborgar. Þegar þangað er komið snýst þetta um að ná sem bestri frammistöðu á sjálfum keppnisdögunum,“ segir Ísak Aron.
Nú hafið þið báðir keppnisreynslu og hafið áður keppt. Gerðuð þið eitthvað öðruvísi í undirbúningnum fyrir þessa keppni?
„Já, fyrir þessa keppni tókum við ákvörðun um að fækka tímaæfingum síðasta vor og setja í staðinn upp svokallaðar workshop-æfingar,“ svarar Ísak Aron.
„Þar lögðum við áherslu á að prófa margvíslegt hráefni, mismunandi tækni og útfærslur. Það gaf okkur tækifæri til að þróa réttina betur, prófa nýjar hugmyndir og öðlast meiri þekkingu á hráefninu. Sú vinna skilaði okkur miklum árangri,“ bætir Georg við.
Í keppni af þessari stærðargráðu skiptir baklandið miklu máli og Georg og Ísak eru sammála um mikilvægi þess.
„Við finnum fyrir gríðarlega miklum stuðningi hér heima. Þetta verkefni hefði einfaldlega ekki verið mögulegt án bakjarla okkar og fjölskyldna sem hafa staðið þétt við bakið á okkur í gegnum allt ferlið. Við erum ótrúlega þakklát fyrir þann stuðning.
Við trúum því að landsliðið okkar hafi aldrei verið í jafnsterkri stöðu til að ná árangri á þessu heimsmeistaramóti. Við erum stoltir af því sem við höfum byggt upp og hlökkum til að sýna hvað í okkur býr. Við vonum að sem flestir fylgist með okkur á næstu dögum og styðji við bakið á liðinu,“ segja þeir félagar að lokum.
Þeir eru nýlentir í Lúxemborg og í óðaönn við að koma sér fyrir og undirbúa sig fyrir keppnina.
Hægt verður að fylgjast með ferðalaginu, undirbúningnum og keppninni á Instagram-reikningi Kokkalandsliðsins.