Slökkt var á flugöryggisljósum á byggingarkrana við hótelturn Radisson Red við Skúlagötu um tíma eftir að framkvæmdum þar var hætt. Ekki liggur fyrir hve lengi var slökkt á þeim.
Eva Bryndís Helgadóttir, skiptastjóri í þrotabúum sex félaga sem tengjast turninum, segir ljósin virka núna. Slökkt hafi verið á þeim í örstutta stund en aðspurð gat hún ekki tilgreint tímaramma. Hún segir að ekki hafi verið slökkt á ljósunum heldur hafi þeim slegið út. Blessunarlega hafi ekki orðið afleiðingar af því.
Einn þeirra sem sendu ábendingu til Isavia segir að slökkt hafi verið á ljósunum frá 2. nóvember.
Isavia á eftir að rýna atburðarásina
Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir stofnuninni hafa borist ábending þann 17. nóvember. Hann viti ekki hve lengi hafi verið slökkt á ljósunum og Isavia eigi eftir að rýna atburðarásina betur. Flugöryggisljós eigi að vera á öllum krönum í framkvæmdum.
Isavia hafi gefið út svokallaða NOTAM-tilkynningu til flugmanna um að ljósin væru óvirk þegar ábendingin barst. Gengið hafi verið í málið samdægurs og ljósin komin í lag daginn eftir, 18. nóvember, um hádegisbil.
Guðjón ítrekar að NOTAM-tilkynningar séu ávallt í gildi þegar kranar séu í notkun á framkvæmdasvæðum og því hafi flugmenn verið meðvitaðir um kranann þó ljósið hafi verið óvirkt. Isavia hafi engu að síður gefið út aðra tilkynningu til flugmanna vegna ljósanna.
Eigandi beri ábyrgð á eftirliti
Guðjón segir að Isavia sé ávallt þakklátt ábendingum frá almenningi, sem hafi í þessu tilfelli orðið til þess að stofnunin varð þess vís að slökkt væri á ljósunum.
Í ákvörðun Samgöngustofu segir að ef ljós bili og ekki takist að laga það innan 24 klukkustunda beri að tilkynna það strax til Isavia. Eigandi mannvirkis beri ábyrgð á reglulegu eftirliti.
Ljósin skuli vera kveikt allan sólarhringinn eða í síðasta lagi þegar flug er í 1500 metra fjarlægð frá hindruninni. Miðstyrks- og lágstyrksljós megi vera með sjálfvirkan skynjara sem kveikir þegar fer að rökkva, það er þegar bakgrunnsljós fer niður fyrir 500 cd/m².