Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands á þriðjudag en þar kemur fram að tollverðir hafi stöðvað Katsanos við komu hans til landsins þann 27. mars síðastliðinn. Fundu þeir falskt gólf í farmrými sendibifreiðar Katsanos og undir því voru fjörutíu og þrjár pakkningar af kókaíni sem var um rúmlega áttatíu prósent að styrk.
Í dómnum segir að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar í ágóðaskyni en Katsanos neitaði sök og sagðist ekkert hafa vitað um efnin. Bar hann fyrir sig að margir hefðu haft aðgang að sendibifreið hans í Þýskalandi en dómurinn féllst ekki á þær skýringar hans.
Þóttist vera starfsmaður vinnuvélafyrirtækis
Katsanos kom hingað til lands undir því yfirskini að hann væri að gera úttekt á vegum fyrirtækisins Caterpillar fyrir Klett og var bæði bíll hans og fatnaður merktur Caterpillar. Framvísaði hann einnig skjölum sem sýna áttu fram á að hann væri kominn hingað til lands á vegum fyrirtækisins. Hjá Kletti kannaðist hins vegar enginn við fyrirhugaða heimsókn Katsanos og fyrir dómi viðurkenndi hann að hafa sagt tollvörðum ósatt.
Á meðan hann beið tollskoðunar endurstillti hann símann sinn og eyddi þannig öllum gögnum úr honum. Eftir það voru fimmtíu og sjö símtöl skráð í símanum í fimm erlend símanúmer á tveimur klukkustundum.
Rannsókn málsins leiddi í ljós að frásögn Katsanos breyttist eftir því sem nýjar upplýsingar komu fram. Sagðist hann meðal annars hafa hitt annan Grikkja um borð í Norrænu en gögn sýndu að þeir hefðu verið samferða frá Þýskalandi í gegnum Danmörku. Bankagögn sýndu mikil ferðalög hans sem og innlagnir hárra fjármuna á bankareikning hans þrátt fyrir að hann væri ekki með fasta atvinnu.
Þá framkvæmdu bifreiðasmiðir tvær matsgerðir á sendibifreiðinni sem sýndu að falska gólfið var sérsmíðað, ófaglega unnið og líklega nýlegt. Dómurinn taldi ljóst að breytingarnar hefðu verið gerðar skömmu fyrir Íslandsferðina og að maðurinn hefði notað bílinn til að fela fíkniefnin. Nýtur Katsanos þó vafa um hvort breytingarnar hafi verið gerðar eftir að hann keypti bílinn í mars á síðasta ári.
Vel skipulagt og reyndi að villa um fyrir lögreglu
Í dómnum kemur fram að samkvæmt þessum málavöxtum sé hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi af einbeittum ásetningi staðið að innflutningi á efnunum. Hlýtur hann níu ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm en það var honum til refsiþyngingar að um mikið magn sterkra fíkniefna var að ræða og að brotið var vel skipulagt. Þá hafi Katsanos jafnframt reynt að villa um fyrir lögreglu.
Til málsbóta kom að hann hefur ekki hlotið refsidóm áður og að ekkert lá fyrir um að hlutverk hans hefði verið annað en að koma efnunum til landsins og afhenda þau öðrum.
Katsanos hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 28. mars og dregst sá tími frá refsingunni. Þarf hann auk þess að greiða sakarkostnað upp á rúmar 11,3 milljónir króna, þar af 7,2 milljónir í málsvarnarlaun verjanda.