Dennes, sem var sjötugur, var dæmdur til dauða eftir að hafa orðið Janos Szucs demantssmyglara að bana árið 1996. Szucs var skotinn nokkrum sinnum. Aftaka hans fór fram í dag og var notast við lyfið prentobarbital að sögn vitna. BBC fjallar um málið.
„Þetta virkar ekki eins og þetta ætti að virka,“ á Dennes að hafa sagt þegar hann var sprautaður með lyfinu að sögn vitnanna.
Talsmaður dómsmálaráðuneytis Texas sagði að illa hefði gengið að finna æð til að sprauta lyfinu. Þá hefði Dennes einnig sagst finna til sársauka þar sem hann hefði ekki verið stunginn.
Það getur tekið á milli nokkurra mínútna og rúmlega klukkustund fyrir lyfið að verða einhverjum að bana. Blaðamaður fréttaveitunnar AP var á staðnum en hann hefur fylgst með mörgum aftökum. Að hans sögn tók langan tíma áður en vitnum var hleypt inn í rýmið og sé það alla jafna vegna þess að fanginn sé að mótmæla eða berjast um.
Þegar vitnunum var hleypt inn fór Dennes nær samstundis að öskra og kvartaði undan sársauka í hægri fótlegg. Þá hafi hann ítrekað sagt að eitthvað hefði farið úrskeiðis.
Einungis tvær vikur eru liðnar frá því að aftaka Christa Pike misheppnaðist. Hún fékk tvo skammta af sama lyfi sem á að vera banvænt en lifði það af. Pike var síðar flutt á sjúkrahús og náði meðvitund.