Utanríkisráðuneyti Danmerkur ætlar að reka einn rússneskan diplómata úr landi vegna gruns um að rússneska leyniþjónustan hafi ráðið tvo Dani til að myrða úkraínskan rappara í Kaupmannahöfn í september. Lögreglu í Danmörku tókst að koma í veg fyrir það ódæði.
„Við höfum kallað sendiherra Rússlands á teppið og tilkynnt honum þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að vísa varnarmálafulltrúa Rússlands frá Danmörku innan sjö daga,“ sagði Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, á blaðamannafundi síðdegis.
Danirnir tveir voru handteknir 25. september, rétt áður en úkraínski rapparinn Kyivstoner ætlaði að halda tónleika í úthverfi Kaupmannahafnar. Grunur er um að rússnesk leyniþjónustustofnun hafi ráðið þá til að fremja morðið. Mennirnir eru í haldi og neita sök. Annar þeirra er í glæpagenginu Loyal to Familia og hinn er með tengsl við gengið.
Rasmussen var spurður á blaðamannafundinum hvers vegna sendiherranum væri ekki vísað úr landi og sagði hann að eins og staða heimsmála væri núna væri mikilvægt að halda áfram að ræða saman. Því hafi sendiherra Danmerkur ekki verið kallaður frá Moskvu og sendiráðinu lokað. Hins vegar væri ljóst að dregið hafi verulega úr samskiptum við Rússland.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa sakað rapparann, sem heitir Albert Viktorovich Vasiliev, um að hafa tekið þátt í að smygla yfir 30 drónum með sprengiefni til Rússlands.
Rapparinn ætlaði að halda tónleika í Póllandi 7. ágúst og þá var rússneskur maður handtekinn, grunaður um að hafa ætlað að bana honum.
Dönsk yfirvöld hafa til skoðunar að hætta að veita Rússum Schengen-vegabréfaáritanir, sagði Rasmussen í dag. Hann sagði að í samvinnu við Evrópuríki væri til skoðunar að herða verulega á reglum um komur Rússa.