Frönsk lögregluyfirvöld hafa til rannsóknar nauðgunar- og ofbeldisbrotakæru leikkonu á hendur þeim Gerard Depardieu og Michel Houellebecq. Hún segir tvímenningana hafa brotið á sér árið 2018 meðan á tökum kvikmyndarinnar Thalahasso stóð, þar sem þeir leika einhvers konar ýkta útgáfu af sjálfum sér.
AFP hefur eftir tveimur heimildarmönnum að leikstjórinn Guillaume Niclaux hafi verið kærður fyrir óbeina þátttöku í athæfinu.
Konan greinir franska Mediapart frá því hvernig Depardieu beitti fingri á kynfæri hennar við tökur á einu atriði meðan Houellebecq hélt henni fastri. Einnig hafi leikarinn beitt hana þvinguðum munnmökum meðan tökuvélarnar rúlluðu. AFP leitaði árangurslaust viðbragða allra sem málinu tengjast.
Depardieu var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum og dró áfrýjun í því máli til baka á mánudag. Í næstu viku kemur í ljós hvort hann verði dreginn fyrir dóm fyrir nauðgun leikkonunnar Charlotte Arnould, sem hann segir ekki hafa átt sér stað.
Houellebecq sætir einnig rannsókn fyrir að hvetja til mismununar með ummælum um múslíma sem hann viðhafði 2022.
Bækur hans fjalla iðulega um einmanaleika, firringu, markaðshyggju og áhrif hnattvæðingar og kynlífsbyltingarinnar á mannleg samskipti. Hann hefur einnig valdið fjaðrafoki með skrifum sínum og opinberum ummælum.