Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins hlaut enginn skaða af og ekki hefur verið tilkynnt um tjón. Pólsk stjórnvöld lýstu atvikinu sem ögrun.
Rússar hafa enn sem komið er ekki tjáð sig um málið. Varnarmálaráðherra Póllands greinir frá því að um ræði stýriflaug af gerðinni Kh-101 sem sprakk á túni um fimmtíu kílómetrum frá landamærum Póllands að Úkraínu. Sprengingin varð snemma morguns, um hálf sex í morgun að íslenskum tíma, og heimamönnum brá eðlilega við.
Grunur liggur einnig á að önnur flaug hafi lent í nágrenni við þorpið Rudnik nad Sanem og að flygildi hafi hrapað skammt frá Mołodycz. Samæfðar heræfingar Breta, Frakka, Pólverja og fleiri þjóða Atlantshafsbandalagsins standa yfir í Nowa Dęba skammt undan.
„Það er engin tilviljun að þessi fyrirbæri hafi lent stutt frá æfingum bandalags hinna viljugu í Nowa Dęba,“ segir Donald Tusk forsætisráðherra Póllands.
Fáeinum klukkustundum eftir sprenginguna heimsóttu varnarmálaráðherrar Bretlands, Frakklands, Póllands, Eistlands og Litháens æfingasvæðið.