Fundir fulltrúa flokkanna fjögurra hafa verið haldnir á leynilegum stað og hafa þátttakendur í viðræðunum sumir hverjir gist á staðnum. Hafa viðræðurnar verið stífar síðan á miðvikudag en samkvæmt heimildum SVT færist Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmanna og forsætisráðherrakandídat, vinstri blokkarinnar ekki nær lausn á stjórnarkreppunni.
Heimildamenn innan flokkanna lýsa stöðunni sem algjörri pattstöðu og horfa svartsýnum augum á framhaldið.
Gera enn kröfu um ráðherrastóla
Þrátt fyrir að flokkarnir hafi náð árangri í málefnavinnu greinir þá enn á um hvernig ríkisstjórnin skuli skipuð. Vinstriflokkurinn gerir kröfu um ráðherrastóla en flokkurinn hefur aldrei átt sæti í ríkisstjórn þrátt fyrir að hafa margsinnis verið stuðningsflokkur ríkisstjórnar.
Miðflokkurinn vill hins vegar ekki sjá Vinstriflokkinn í ríkisstjórn og markmið Andersson er að mynda stjórn á þeim forsendum að Vinstriflokkurinn standi utan stjórnar.
Svo það gangi upp þarf Andersson að bjóða Vinstriflokknum eitthvað annað í staðinn. Hefur hún meðal annars boðið flokknum að fá sérstakan embættismann í stjórnarráðið, tillögu sem Miðflokkurinn á að hafa samþykkt. Vinstriflokkurinn hafnaði hins vegar tilboðinu og krefst áfram ráðherrastóla.
Frétta að vænta á þriðjudag
Mikael Damberg, sem fer fyrir samninganefnd Jafnaðarmanna, kveðst þó vongóður og segir alla flokka hafa lagt sitt af mörkum á uppbyggilegan hátt.
„Ég vona að það sé sameiginlegur vilji til að finna lausnir og axla ábyrgð á því að Svíþjóð fái ríkisstjórn,“ sagði Damberg við SVT.
Á þriðjudag mun þingforsetinn Anders Norlén kalla formenn allra flokka á sinn fund og þar mun Ulf Kristersson, sitjandi forsætisráðherra og formaður Moderaterna, væntanlega skila stjórnarumboði sínu.
Óljóst er hvaða mynd Andersson mun draga upp af stöðu samningaviðræðnanna á fundi sínum með Norlén en viðræðum var slegið á frest í dag.
Talsmaður Græningja.
Talsmaður Græningja.
Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra.
Formaður Miðflokksins.
Formaður Svíþjóðardemókrata.
Formaður Sósíaldemókrata.
Formaður Vinstriflokksins.
Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra.
Formaður Moderaterna og forsætisráðherra.
Búist er við að þær hefjist að nýju um helgina en nú þegar hafa Andersson og Elisabeth Thand Ringqvist báðar verið felldar í atkvæðagreiðslu þingsins um embætti forsætisráðherra. Alls getur þingforseti boðað fjórar slíkar atkvæðagreiðslur en endi þær allar án þess að forsætisráðherra er kosinn þarf að boða til nýrra kosninga.
Óljóst er hvort kosið verði um Kristersson þegar hann færir Norlén skýrslu sína um árangur stjórnarmyndunarviðræðna hans en nokkuð ljóst er að hann er ekki með meirihluta þingmanna á bak við sig.