Tölvuárásir, eins og sú sem gerð var á vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf., verða algengari á næstu misserum eftir því sem geta gervigreindarlíkana verður meiri. Þetta segir framkvæmdastjóri 1984. Hann líkir glímu starfsmanna við árásina við baráttu við björn.
Fáguð og þróttmikil árás
Fyrirtækið 1984 ehf. hýsir stóran hluta íslenskra vefja og er eitt það stærsta á sínu sviði hér á landi. Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir árásina hafa byrjað í síðustu viku og farið vaxandi síðan þá. Hún var fáguð og dýr.
„Þetta var gífurlega fáguð og þróttmikil árás. Til þess að gera svona árásir í dag þarftu verulegt fjármagn. Það er metið svo, af þeim sem vit hafa á, að þetta hafi kostað tugi milljóna í gervigreindargjöld. Hún er alveg risa, risa, risa stór og dýr.“
Árásin hafði áhrif á mörg þúsund fyrirtæki og einstaklinga hér á landi. Það eina í stöðunni hafi verið að stöðva alla þjónustu tímabundið.
Ekki er búið að leggja mat á endanlegt tjón og ekki liggur fyrir hvort einhverjum gögnum hafi verið stolið.
Árás á þjóðaröryggi Íslendinga
Mörður bendir á að 1984 ehf. sé skilgreint sem hluti af nauðsynlegum stafrænum innviðum þjóðarinnar.
„Og árás af þessu tagi er árás á þjóðaröryggi Íslendinga. Þegar hún er gerð á okkur af þessum sökum. Þessi árás sýnir það bara að þjóðaröryggið er undir. Það er alveg klárt. “
Aukin geta gervigreindar geri árás sem þessa mögulega.
„Þegar maður er að reyna að verjast þessu með eigin höndum og heila, maður upplifir það að það sé ójafn leikur. Hraðinn er svo ofboðslegur og getan. Þetta er eins og að berjast við björn.“
Viðbúið er að árásum fari fjölgandi.
„Þetta mun versna og mun verða algengara á næstu árum. Ég get alveg fullyrt það. Við erum rétt að sjá blábyrjunina á afleiðingunum á net- og gagnaöryggi af þessari gervigreindarvæðingu.“