Bæjaryfirvöld í Múlaþingi þrýsta á Vegagerðina að ráðast í endurbætur á Fjarðarheiði og heimastjórnin á Seyðisfirði krafðist þess í bókun á síðasta fundi sínum að sett yrði sérstök fjárveiting í styrkingu og endurbætur vegarins.
Þetta er hæsti fjallvegur landsins og sérstaklega erfiður í vetrarþjónustu. Í ríflega mánaðargömlu minnisblaði Vegagerðarinnar kemur fram að undanfarin ár hafi ekki verið lögð mikil vinna í skoðun og greiningu á endurbótum á Fjarðarheiði þar sem fyrir hafi legið að jarðgöng myndu leysa veginn af hólmi innan tíðar.
„Það voru allir að bíða eftir að það yrði byrjað á göngum“
„Það var skilningur á því að það yrði ekki farið í framkvæmdir þarna af því að það voru allir að bíða eftir að það yrði byrjað á göngum,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi.
„Núna bara blasir við okkur allt önnur staða í ljósi ákvörðunar innviðaráðherra um að gjörbylta þeirri gangaáætlun sem hefur verið unnið að hingað til og Fjarðarheiðargöng ekki einu sinni almennilega sýnileg, hvenær þau eiga að koma á áætluninni. Bara svona gefið undir fótinn eitthvað óljóst að kannski einhvern tímann.“
Dagmar Ýr telur að almennt átti fólk sig ekki á umferðarþunganum á veginum um Fjarðarheiði. Á stærstu dögum geti vel yfir 1000 bílar farið þar yfir en meðalumferð á dag yfir árið er tæpir 700 bílar. „Og skilningsleysið snýst kannski um að það er einhvern veginn alltaf talað eins og þessi vegur og þessi göng séu bara fyrir Seyðfirðinga. Það er auðvitað ekki þannig. Seyðisfjörður er gífurlega vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Ég hugsa að það séu mjög fáir ferðamenn sem koma á Austurland sem ekki fara á Seyðisfjörð til að taka mynd á Regnbogagötunni sem er einn vinsælasti sjálfustaður landsins, hugsa ég.“
„Og svo fyrir utan Norrænu auðvitað. Það kemur einu sinni í viku alþjóðleg ferja í höfnina á Seyðisfirði, stútfull af bílum sem auðvitað keyra þessa heiði og hafa yfir sumartímann meira að segja, og sérstaklega í fyrstu ferðum á vorin og alveg inn í júní, þá hafa oft verið vandamál á heiðinni. Þannig að já, mér hefur þótt skorta rosalega mikið á skilning bæði frá stjórnvöldum og kannski að einhverju leyti almenningi í þessari umræðu og hvaða aðstæður við búum við með þessa heiði.“
Kostnaður við vegabætur á Fjarðarheiði á bilinu 1,5 til 7 milljarðar króna
Í minnisblaði Vegagerðarinnar er farið yfir áætlaðan kostnað við aðgerðir á Fjarðarheiði. Styrkingar vegarins og endurbætur miðað við núverandi vegbreidd gætu kostað einn og hálfan til tvo milljarða króna. Vegurinn er sex komma fimm til sjö metra breiður sem samræmist ekki gildandi kröfum. Vegur af þessari gerð ætti að vera níu metra breiður og kostnaður við slíka endurbyggingu er gróflega áætlaður um sex til sjö milljarðar. Breikkun í átta metra gæti kostað fjóra til fimm milljarða. Dagmar segir ekki lengur hægt að bíða með lágmarksendurbætur, þeim verði ekki frestað burtséð frá því hvort eða hvenær jarðgöng verði að veruleika.
„En svo er kannski hitt annað mál að ef það á að fara í algjöra uppbyggingu á veginum sem að gæti þá kostað 6-7 milljarða, þá erum við bara farin að spyrja okkur í alvörunni: Er það eitthvað sem við eigum að setja pening í þegar við vitum að það mun aldrei neitt duga til að breyta veðurhæðinni sem verður á þessari heiði. Það mun ekkert breyta því í hvaða hæð hún er. Hvað ætla menn að gera? Setja vegskála yfir marga kílómetra til að koma í veg fyrir ófærð á heiðinni? Það er bara ekki raunhæft að gera þennan veg þannig að hann verði ekki alltaf hættulegur á veturna.“
Væri nær að setja svo mikla fjármuni í að byrja að grafa göng
Um leið og kallað er eftir nauðsynlegum endurbótum á Fjarðarheiði, segir Dagmar, hafni þau því að ráðist verði í dýrustu framkvæmdir fyrir allt að sjö milljarða króna sem geti aldrei tryggt fullkomið öryggi á þessari leið.
„Já, algjörlega. Okkur finnst það bara ótrúlega vitlaust að ætla að fara að setja marga milljarða í að gera við veg sem aldrei getur orðið öruggur í staðinn fyrir að setja þá fjármuni í að byrja að grafa þessi göng. Og það sem hefur verið svolítið erfitt og óþolandi í þessari umræðu um göngin, og af því það er alltaf verið að klifa á því að þau séu svo ægilega dýr, vissulega eru þau það en það kostar bara alltaf visst á ári að grafa göng af því að það er verkefni sem þú getur bara unnið visst hratt þannig að þú kemst aldrei yfir að grafa meira heldur en einhverja X kílómetra á ári og það kostar bara eitthvað X mikið. Þannig að við erum ekkert að fara að eyða meira á ári í þessi göng en einhver önnur. Þessi munu bara taka aðeins lengri tíma í framkvæmd.
Ákvörðun um að færa Fjarðarheiðargöng neðar á lista situr enn mjög í fólki eystra
Dagmar segir að ákvörðun innviðaráðherra um að færa Fjarðarheiðargöng neðar á lista sitji enn mjög í íbúum og ráðamönnum fyrir austan. Áfallið hafi sérstaklega verið mikið fyrir Seyðfirðinga en þeir haldi engu að síður áfram að berjast fyrir göngum.
„Þessi göng eru fullhönnuð, þau eru tilbúin til útboðs. Það er bara fáránlegt að það sé ekki byrjað á þeim göngum sem eru tilbúin. Það er verið að að gera samgönguáætlun með þessu að pólitísku tæki sem verður héðan í frá hægt að breyta að vild í hvert skipti sem skipt er um í brúnni. Þannig að núna bindum við auðvitað vonir við að þegar næsta ríkisstjórn kemur munum við bara þurfa að fara að berjast fyrir því að þessi göng komist aftur efst á listann og það er allt opið með það greinilega, fyrst það á að vinna þetta svona.“
„Seyðfirðingar hafa mikið kallað eftir því að það verði gerð einhvers konar stjórnsýsluúttekt á ákvörðun ráðherra, hvort þetta sé yfirhöfuð eðlilegt. Að það sé hægt að taka stjórntæki eins og samgönguáætlun og gera það að svona pólitísku verkfæri og breyta því eftir hvernig vindátt blæs. Ég held að það væri vel þess virði og mér finnst Alþingi eiga eftir að gera þetta mál svolítið upp.“