Drífa Kristjánsdóttir, fyrrverandi oddviti Bláskógabyggðar, segir ríkið ætla að afla sér tekna með gjaldtöku á ferðamenn í krafti uppbyggingar sem landeigendur hafa kostað. Þetta kemur fram í aðsendri grein Drífu á Vísir.is. Drífa segir: „Nú hefur atvinnumálaráðherra lagt fram frumvarp til laga um gjaldtöku á ferðamenn á Geysi, Gullfossi og Þingvöllum.Ráðherra lagði áherslu á að þjóðin ætti þessa staði. Hún nefndi ekki að stjórnvöld hafa ekkert lagt til þessara staða hvorki í formi þjónustu né aðstöðu fyrir ferðamenn.“
Segir ríkið ætla að afla sér tekna af uppbyggingu landeigenda – „Stjórnvöld hafa ekkert lagt til þessara staða“