Breytingarnar taka gildi fyrsta nóvember næstkomandi og snúa að almennu leiðarkerfi Strætó að því er fram kemur í tilkynningu. Fjölmennustu leiðirnar, ásinn og sexan, haldast óbreyttar en síðustu ferðir á kvöldin á um helmingi leiða verða felldar niður, á virkum dögum og um hlegar.
Fram kemur að þótt breytingarnar nái til um helmings leiða eru niðurfelldu ferðirnar aðeins 4,5% af heildarfjölda ferða á höfuðborgarsvæðinu og enn lægra hlutfall ef ferðir pöntunarleiða eru teknar með.
Þá verða gerðar breytingar á tímatöflum á annatíma á leiðum 3, 5 og 12 þar sem tímabil 10 mínútna tíðni verður stytt á þessum leiðum. Tíðni verður dregin saman úr 15 mínútum í 30 á leið 15 milli annatíma og á leið 19 á annatíma. Akstri um helgar verður hætt á leið 36 og á laugardögum á leið 17. Ein morgunferð kl. 6:33 verður felld niður frá Tungubökkum á leið 7.
Um jólin, frá 21. desember til 5. janúar nemur tíðni á annatíma á leiðum 3, 5 og 12 á 15 mínútum í stað 10 áður. Leiðir 21, 24 og 31 aka á 30 mínútna fresti á annatíma í stað 15. Þá mun leið 8, Háskólaleiðin, aka á 30 mínútna fresti allan daginn. Svipað fyrirkomulag er fyrirhugað um sumar framvegis.