Skólinn sem um ræðir er Sigtuna Humanistiska Läroverket, einkarekinn heimavistarskóli sem á rætur sínar að rekja til tveggja skóla sem stofnaðir voru fyrir rúmum hundrað árum og síðar sameinaðir undir nafninu Sigtunaskólinn.
Skólinn er staðsettur tæpa sextíu kílómetra norðaustur af Stokkhólmi og verið kallaður „elítuskóli“ í fjölmiðlum en þar hafa ýmsir þekktir einstaklingar stundað nám í gegnum tíðina, þar á meðal Karl Gústaf XVI Svíakonungur, einstaklingar úr hinni þekktu Wallenberg-fjölskyldu sem og fyrrum forsætisráðherrann Olof Palme.
Lögregla greip til aðgerða í skólanum þann 8. október eftir að tilkynning barst frá skólastjórnendum. Síðan þá hafa sex nemendur fengið stöðu sakbornings og átta þolendur stigið fram en brotin eru sögð hafa átt sér stað frá júní og fram í október. Meðal sakargifta eru kynferðisleg áreitni, gróf líkamsárás og frelsissvipting og talið er að áhöldum hafi verið beitt við barsmíðar.
Reglubók um framkvæmd refsinga og ofbeldi sem minni á pyntingar
Samkvæmt Aftonbladet tengist upphaf málsins einhvers konar vígsluathöfn nýnema. Í frétt miðilsins er rætt við mann sem segist hafa góða innsýn í starf skólans sem segir að gamlar hefðir og þrýstingur frá fyrri kynslóðum hafi lengi sett svip sinn á starfið. Stór hluti starfsfólks hafi reynt að vinna gegn þessari menningu með litlum árangri þar til nú, þegar hluti nemenda hafi loks þorað að segja frá því sem þar á að hafa átt sér stað.
Saksóknarinn Lisa dos Santos stýrir rannsókn málsins og í samtali við SVT lýsir hún einhvers konar valdakerfi sem viðgengist hefur innan veggja skólans um árabil. Elstu nemendurnir fá þá ákveðna titla sem erfast á milli árganga, meðal annars svokallaðan „Formann refsinga“. Við rannsókn málsins var auk þess lagt hald á bók sem dos Santos lýsir sem reglubók um framkvæmd refsinga.
Í ákæru kemur fram að nemendur hafi verið beittir miskunnarlausu og niðurlægjandi ofbeldi sem minni á pyntingar. Er sagt að bæði hafi verið um að ræða líkamlegt og andlegt ofbeldi en meðal annars er talið að nokkrir yngri nemendur hafi verið neyddir til að afklæða sig og framkvæma kynferðislegar athafnir á sama tíma og þeir voru beittir barsmíðum.
Þá hafi ofbeldismennirnir sem mest höfðu sig í frammi borið lambhúshettur á meðan ofbeldið átti sér stað og notað áhöld við barsmíðar, bæði skóhorn og belti.
Framkvæma úttekt
Þann 20. október hóf sænska skólaeftirlitið úttekt á starfi skólans. Í tilkynningu segir að úttektin muni taka sinn tíma en kennarar í skólanum hafa varað við þöggunarmenningu og sagst eiga á hættu að fá áminningu ef þeir gagnrýna skólann opinberlega.
Forsvarsmenn skólans hafa lítið viljað tjá sig um málið á meðan það er til rannsóknar en framkvæmdastjóri skólans, Sofia Kinberg, segir við Aftonbladet að það sé af virðingu við aðila málsins.
„Öryggi nemenda skólans er mikilvægast og við einbeitum okkur að því að styðja við þá á erfiðum tímum. Við höfum öll áhyggjur vegna þessa máls,“ skrifar hún í skilaboðum til miðilsins.