Hvað er kvöld með barninu þínu mikils virði þegar reikningarnir bíða líka? Tinna Laufey Ásgeirsdóttir vill skilja ákvarðanirnar sem fólk tekur í sínu daglega lífi. Hvað ræður því hvernig þú ákveður að endingu að verja tíma þínum þegar upp er staðið? Hún leiðir rannsókn við Háskóla Íslands þar sem raunverulegir peningar koma við sögu og lesendum er boðið að taka þátt. Það er komið að lokum vinnudagsins þegar foreldri fær boð um aukavakt. Heima bíður barn sem hefur hlakkað til kvöldsins. Á sama tíma er reikningur á gjalddaga. Hvort er rétt að gera?
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir um rannsóknina VAL: „Það er auðvelt að dæma fólk út frá einni ákvörðun“