Íris Erlingsdóttir skrifar:
„Loftslagsráð hefur sent frá sér stöðumatsskýrslu um loftslagsmál. Hún er alvarleg áminning um að Ísland stendur ekki við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum.“
Þannig hefst grein Stefáns Jóns Hafstein á visir.is um stöðumat Loftslagsráðs, sem hann fjallar um eins og það séu fyrirmæli frá æðra yfirvaldi. Ríkisstjórnin á að „taka til hendinni“ og haga atvinnustefnu, opinberum innkaupum og ríkisfjármálum eftir loftslagsmarkmiðunum.
Stefán Jón vísar til álits ráðsins til að réttlæta breytingar á því hvernig ríkið ver almannafé. Full ástæða er til að spyrja hvaða sjónarmið fá þar vægi.
Hverjir sitja í Loftslagsráði, sem kostaði skattgreiðendur ríflega 61 milljón króna árið 2025?
Loftslagsráð er ekki „ráð“ hlutlægra vísindalegra ráðgjafa. Við nánari athugun virðast mér þar sitja vinstrimenn og misróttækir umhverfisverndarsinnar af ýmsum toga.
Vinstrisinnuð ríkisstjórn kemur á fót ráði, skipar í það liði róttækra umhverfisverndaraktívista og vinstrisinna og greiðir þeim af almannafé – „Rekstur Loftslagsráðs kostaði ríflega 61 milljón króna árið 2025. Þar af fóru rúmar 38 milljónir í laun og launatengd gjöld“ – til að framleiða froðufræðiskýrslur („Svartar skýrslur“) sem byrja á „ríkisstjórnin verður“ af því að við í hinu heilaga Loftslagsráði segjum það.
Formaður ráðsins vill herða loftslagsbaráttuna og framkvæmdastjórinn Anna Sigurveig Ragnarsdóttir skrifar af eldmóði á samfélagsmiðum. Eftir að hún sneri heim af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Belém í Brasilíu skrifaði hún að hún væri tilbúin að taka hugmyndir og skuldbindingar frá ráðstefnunni með sér inn í starfið fram undan. „Now back in Iceland, ready to bring the energy, ideas, and commitments from Belém into the work ahead.“ Hún skrifaði einnig: „Það kemur mér því ekki á óvart að sjá að gæðakonur úr mínum LinkedIn hring flykkist til hennar á Inner Development Goals.“ Þar sem boðskapurinn er að við þurfum að „horfa inn á við til að breyta heiminum.“
Ég les færslur hennar sem málflutning róttæks umhverfisverndaraktívista. Í ráðinu situr einnig formaður Landverndar og einn varafulltrúinn hefur setið í stjórn samtakanna. Tveir fulltrúar hafa boðið sig fram fyrir Samfylkinguna. A.m.k. sex fulltrúar Loftslagsráðs hafa mælt opinberlega fyrir aðgerðum sem hafa verið á dagskrá umhverfisverndaraktívista.
Aðeins einn fulltrúi Loftslagsráðs, Auður Alfa Ólafsdóttir, virðist hafa bent á að loftslagsaðgerðir stjórnvalda hafi komið hart niður á launafólki.
Hvers vegna á álit aktívistaklúbbs að ráða því hvernig ríkisstjórnin ver peningum skattgreiðenda?
Það er pólitísk ákvörðun að verja fé til loftslagsaðgerða. Stefán Jón útskýrir ekki hvernig hann fékk út „árlegan sparnað upp á 100 milljarða króna,“ enda vinstri menn hvorki sterkir í reikningi né raungreinum, en að vitna í skýrslu ráðsins eins og það sé skipað óháðum vísindamönnum og sérfræðingum, sem það auðvitað er ekki, leysir hann ekki undan því að færa rök fyrir eigin tillögum.
Ég hef nú sex sinnum spurt umhverfisráðuneytið hvað loftslagsaðgerðir ríkisins hafi kostað (opinberar tölur eru fáanlegar), en mikilvægara, hverju hafa þær skilað? Í sjötta skiptið spurði ég opinberlega. Ráðuneytið hefur enn ekki svarað mér.
Samkvæmt Hagstofu Íslands námu umhverfis- og auðlindaskattar samtals um 222 milljörðum króna á árunum 2021, 2023 og 2024.
Stefán Jón vill að stjórnvöld „taki til hendinni“. Þau gætu byrjað á því að svara fólkinu sem borgar reikninginn. Sjálfur gæti hann byrjað á því að sýna okkur reikningsdæmið sem gaf honum „árlegan sparnað upp á 100 milljarða króna“.
Höfundur er fjölmiðlafræðingur