Meðal verkefna hennar eru The Retreat við Bláa lónið, GeoSea á Húsavík, Vök á Héraði, Guðlaug við Langasand á Akranesi, sundlaugin á Hofsósi, Skógarböðin í Eyjafirði og böðin í Kerlingarfjöllum. Í sumar voru opnuð ný Jarðböð við Mývatn og ný og endurbætt aðstaða á Laugarvatni, Fontana. Fjallaböðin í Þjórsárdal eru nú í byggingu.
„Það kom okkur verulega á óvart að hljóta orðuna. Það er gríðarlegur heiður að bætast í hóp fyrri handhafa, sem eru margir af fremstu arkitektum og listamönnum Norðurlanda sem hafa haft áhrif víða um heim. Okkur þótti sérstaklega vænt um að í umsögninni væri dregið fram hvernig við tengjum þúsund ára íslenskan menningararf við alþjóðlega þróun í byggingarlist og hvernig sú nálgun geti vísað norrænni hönnun veginn. Það er ánægjulegt að það sem við gerum hér á eyjunni okkar langt í norðri skuli eiga erindi út í heim,“ segir Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt og einn eigenda Basalt arkitekta.
Í umsögn sem fylgdi orðunni kom fram að Basalt arkitektar eru þekktir fyrir framlag sitt til íslenskrar nútímabaðmenningar, sem er á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf, og endurskilgreina stöðugt samspil arkitektúrs, náttúru og vellíðunar.
Með því að sameina þúsund ára íslenskan menningararf og alþjóðlega framþróun móta þau arkitektúr með sterk sérkenni og framsækna sýn sem vísar norrænni hönnun veginn í alþjóðlegu samhengi.“
Hafi skapað af næmni
Basalt arkitektar er íslensk arkitektastofa, stofnuð árið 2009 af Sigríði Sigþórsdóttur, sem leiðir hana ásamt meðeigendum sínum, Hrólfi Karli Cela, Marcosi Zotes og Perlu Dís Kristinsdóttur.
Í umsögn sagði einnig að starf stofunnar væri nátengt síbreytilegu landslagi Íslands, eldvirkni þess, jarðhita og veðurfari. Landslagið veitti innblástur og setji hönnuninni um leið skorður. Innan þess ramma hafi þau skapað af næmni og nákvæmni sérstæðar rýmisupplifanir sem styrkja tengsl fólks við staði.
Meðal fyrri íslenskra handhafa eru Jóhannes S. Kjarval, Erró, Rúrí, Sigurður Guðmundsson, Hrafnhildur Arnardóttir, Ragnar Kjartansson og arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Pálmar Kristmundsson.
Alvar Aalto og Arne Jacobsen
Meðal annarra norrænna arkitekta sem hafa hlotið orðuna eru Alvar Aalto, Arne Jacobsen, Jørn Utzon, Sverre Fehn, Sigurd Lewerentz, Jan Gehl, Johan Celsing og Dorte Mandrup.
Stofan hefur einnig hannað hótel, íbúðarhúsnæði, skólahúsnæði, heilbrigðisbyggingar og almenningsrými. Þar má nefna Óðinstorg í Reykjavík og Ísland Duty Free á Keflavíkurflugvelli sem opnaði í september.
Samkvæmt tilkynningu vinna þau nú ásamt Gagarín og Rán Flygenring að Samfélagi í bleyti (SOAK: Rituals of Collective Belonging), framlagi Íslands á Arkitektúrtvíæringnum í Feneyjum 2027. Marcos Zotes er sýningarstjóri. Sýningin fjallar um íslenska baðmenningu og hlutverk sundlauga, lóna og annarra baðstaða sem samkomustaða í daglegu lífi.