Myllan greinir frá því í tilkynningu að ákvörðunin hafi verið tekin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Um er að ræða jólasmákökudeigrúllur með þristakurli.
Ástæðan er sögð sú að varan innihaldi mögulega málmloku sem er notuð til þess að loka deigrúllunum.
Neytendum er bent á að neyta ekki þristakaka heldur farga þeim eða skila í verslanir þar sem það var keypt eða til Myllunnar Blikastaðavegi 2.