Varðskipið Freyja kom með erlent flutningaskip, sem varð fyrir stýrisbilun um 210 sjómílur austnorðaustur af Langanesi, til Akureyrar síðdegis í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu Landhelgisgæslunnar.
Þar segir jafnframt að verkefnið hafi tekið heldur lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir. Það hafi að öðru leyti gengið vel.
Á fimmta tímanum í gær komu dráttarbátar frá Akureyrarhöfn til móts við skipin undan Hjalteyri og tóku þar við flutningaskipinu.
Á Akureyri fór hafnsögumaður um borð í flutningaskipið og í kjölfarið sleppti áhöfn Freyju dráttartauginni.
Á myndum sem Landhelgisgæslan hefur deilt sést að skipið er merkt norska flutningafyrirtækinu Wilson. Skip merkt Wilson hafa áður lent í vandræðum við strendur Íslands. Í desember 2006 strandaði Wilson Muuga í Hvalnesfjöru. Þá strandaði Wilson Skaw á Húnaflóa í apríl 2023.