Spennu var hleypt á Suðurnesjalínu tvö í dag, rúmum tveimur áratugum eftir að undirbúningur að henni hófst. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar áfanganum og forstjóri Landsnets segir þetta auka raforkuöryggi.
Langur aðdragandi að Suðurnesjalínu 2
Suðurnesjalína 2 er 30 kílómetra löng 220 kílóvolta lína sem bætir annarri flutningsleið raforku við milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Með henni eykst afhendingaröryggi og flutningsgeta til og frá svæðinu, sem styður bæði við raforkunotkun á Suðurnesjum og flutning raforku frá virkjunum á Reykjanesi.
Það hefur tekið langan tíma að gera Suðurnesjalínu 2 að veruleika. Undirbúningur hófst 2005 en landeigendur hafa átt í löngum deilum við Landsnet vegna framkvæmdanna sem hófust 2016.
Þær voru stöðvaðar eftir dóm Hæstaréttar ári síðar þar sem heimild til eignarnáms var ógild. Landsnet endurskoðaði ferla við undirbúning framkvæmda og verkefnið fór í nýtt umhverfismat og leyfisferli.
Jarðvinna hófst að nýju 2024 en leyfisferli og dómsmál höfðu áhrif á framvinduna. Þá hefur Landsnet greitt landeigendum rúmlega 300 milljónir króna í bætur. Nú, rúmum tveimur áratugum eftir að undirbúningurinn hófst, var Suðurnesjalína tvö tekin í gagnið.
Bráðnauðsynleg framkvæmd
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir það hafa margvíslega þýðingu fyrir samfélagið í kringum Suðurnesjalínu 2.
„Það bæði eykur flutningsgetuna inn á svæðið. Það eykur líka áfallaþol og sveigjanleika og afhendingaröryggið. Þannig að þetta er bara bráðnauðsynleg framkvæmd.“
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir strax þörf fyrir Suðurnesjalínu 3.
„Suðurnesin eru svæði tækifæranna. Hér er mikil eftirspurn en á sama tíma er hér líka mikil orkuframleiðsla á svæðinu. Þannig að Suðurnesjalína 3 myndi skapa aukið áfallaþol hér á svæðinu en líka framtíðarmöguleika fyrir frekari orkuöflun fyrir Íslendinga í heild sinni.“