Dómur Alþjóðadómstólsins um þjóðarmorð í Mjanmar getur haft áhrif á mál gegn Ísrael út af stríðinu á Gaza. Þetta segir Þórdís Ingadóttir prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Minni krafa sé gerð um að sanna þurfi ásetning fyrir þjóðarmorði.
Í dómi Alþjóðadómstólsins segir að öryggissveitir Mjanmar hafi drepið þúsundir Róhingja, beitt fjölda kvenna kynferðislegu ofbeldi og að börn hafi orðið fyrir grófu ofbeldi. Þetta er í fyrsta sinn sem ríki er dæmt sekt um hópmorð, sem í daglegu tali kallast þjóðarmorð. Stjórnvöld í Mjanmar segja aðgerðirnar hafa beinst gegn uppreisn.
„Þetta er náttúrulega mjög stór áfangi sögulega fyrir þessa þjóð, fyrir alþjóðlög og fyrir þennan dómstól,“ segir Þórdís. Hún nefnir til samanburðar að í dómi vegna stríðsins í Júgóslavíu hafi ekki talist sannað að Serbar hefðu ætlað að fremja þjóðarmorð þar. Í þessum dómi sé minni krafa um að sanna ásetning.
Mikil áhrif á önnur mál
„Ég held að hann hafi gríðarleg áhrif á mál sem eru hjá sama dómstólstól eins og það vitanlega mál Suður-Afríku gegn Ísrael. Þarna er verið að takast á við sömu ákvæði sáttmálans þó aðstæður séu ólíkar,“ segir Þórdís.
Hún bendir á að dómurinn sé bindandi og Mjanmar sé skylt að framfylgja honum.
„Það er enginn dómur frá Alþjóðadómstólnum í Haag svona ítarlegur varðandi bætur og um skyldu þeirra að taka við flóttafólki. Það er enn rúm milljón þarna sem flúði til Bangladess og býr þar við hræðilegar aðstæður í flóttamannabúðum. Stjórnvöld í Mjanmar eru skyld til að taka það fólk til baka.“
Til þess fá þau tvö ár, annars þarf að greiða fébætur. Svo afdráttarlaus úrskurður hafi ekki fallið áður.
Þórdís telur að þar sem minni kröfur séu gerðar um sönnun fyrir ásetningi geti dómurinn haft áhrif á málið gegn Ísrael, sem Ísland tekur þátt í.
„Ef það voru einhverjir tveir möguleikar til staða útilokaði það strax að þetta gæti verið hópmorð eða þjóðarmorð. Hér er farið vægar í það og sagt að það gæti hafa verið annar ásetningur eins og í þessu máli. En eina rökrétta ályktunin er samt talin sú að þetta sé þjóðarmorð.“
Kveikur heimsóttu flóttamannabúðir Róhingja í Bangladess 2017. Umfjöllunina má sjá í spilaranum.