Greint var frá því fyrr í morgun að 1984 ehf. stöðvaði tímabundið alla þjónustu sína vegna umfangsmikillar tölvuárásar. Þúsundir vefa eru óaðgengilegir vegna þessa.
Af stærðargráðu þjóðríkis
Í viðtali í Reykjavík síðdegis segir Mörður að fyrirtækið hafi orðið vart við tilraunir til að komast inn í kerfin í gærmorgun. Þær hafi hafist í minna mæli 14. nóvember og náð hámarki í gær.
Hann segir að ákveðið hafi verið að loka algjörlega á kerfið til að stöðva árásina og að það hafi tekist.
„Við völdum að það yrðu óþægindi en ekki skaði,“ segir hann.
Aðspurður segir hann ekki hægt að fullyrða um það hver standi árásinni að baki. Hann hafi grunsemdir en vilji ekki ræða þær á meðan rannsókn stendur yfir.
„En þetta er árás af stærðargráðu sem þjóðríki gera. Það eru ekkert mjög margir aðilar sem ráða við árás af þessari stærðargráðu,“ segir Mörður.
Kennir 1984 um
Samkvæmt umfjöllun rafmyntarmiðilsins Decrypt hrundi gengi rafmyntarinnar XMR1 um meira en 99% á um hálftíma í dag, úr um 500 dölum í um einn dal. Rafmyntin er gefin út af rafmyntarþjónustunni Wagyu og á að standa fyrir Monero á viðskiptavettvanginum Hyperliquid.
Aðgangurinn sem gaf táknið út sendi 5,2 milljónir tákna á nýjan aðgang, sem seldi um 364.000 þeirra til 388 kaupenda fyrir 13,5 milljónir dala. Fénu var síðan skipt í rafmyntina Ethereum.
Stofnandi Wagyu, sem gengur undir nafninu PerpetualCow, kenndi árásinni á 1984 um. Hann skrifaði á samfélagsmiðlum að lykillinn sem gaf út táknið hefði verið geymdur á gömlum netþjóni hjá fyrirtækinu sem hann hefði eytt, en 1984 hefði haldið eftir skrám og gögnum.
„Krufningarskýrsla á 13 milljóna dala XMR-hakkinu: Þetta er VERRA en ég hélt. Í ljós kemur að allur hýsingaraðilinn 1984.hosting var hakkaður í dag og gögnum allra stolið. Dreifingarlykill XMR1 var geymdur á GÖMLUM netþjóni þarna sem ég EYDDI, en einhvern veginn voru gögnin/skrárnar enn geymdar. Boðskapurinn hérna er sá að þessir hýsingaraðilar geyma gögnin þín/skrárnar þínar þó að þú eyðir netþjóninum þínum hjá þeim,“ skrifaði PerpetualCow á samfélagsmiðlum í dag.
Ekki vitað hvort gögnum hafi verið stolið
Mörður Áslaugarson kom af fjöllum þegar þetta var borið undir hann enda nýta sér þúsundir viðskiptavina hýsingu 1984.
„Við vitum ekki raunverulega hvort að þarna varð gagnaleki eða ekki. Við erum að skoða þetta núna og laga það sem þarf að laga,“ segir hann.
1984 er stærsti vefhýsingaraðili landsins og rúmur helmingur viðskiptavina þess eru erlendir.