Engar tillögur að lausnum á stærstu deilumálum í heiminum komu fram á sögulegum fundi leiðtoga Bandaríkjanna, Rússlands og Kína í dag. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, segir fundinn aðallega hafa verið tilefni fyrir þá þrjá að láta mynda sig saman.
„Það svo sem gerðist ekki margt sögulegt á þessum fundi, það sem var kannski merkilegt eða sögulegt var það að þessir þrír leiðtogar komu saman á einum stað í fyrsta sinn,“ segir Guðmundur.
Svona fundir geti rutt veginn og leiðtogarnir þrír hafi greinilega áhyggjur af útbreiðslu kjarnorkuvopna. „Það væri auðvitað mjög æskilegt ef viðræður um að takmarka þau komi út úr þessu. En á þessum fundi gerðist það í sjálfu sér ekki. En það var kannski ekki við því að búast.“
Trump þurfi að lúta lýðræði
Sterkt samband Xi Jinping, forseta Kína, og Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, er það helsta sem hann tekur út úr fundinum. „Að mörgu leyti komu þeir þarna fram svona sem ja saman gegn Bandaríkjunum.“
Hann bendir á að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, eigi aðeins tvö ár eftir af sínu kjörtímabili og flokkur hans hafi nýverið tapað stórt í þingkosningum.
„Þannig að bæði Pútín og Xi komu að þessum fundi þannig að þeir vita það alveg að Trump hefur ekki vald til að gera mikið.“
Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna má Trump ekki bjóða sig fram aftur, sami maður má aðeins gegna embætti forseta í tvö kjörtímabil. „Bandaríkin eru lýðræðisríki. Hann þarf að standa fyrir kosningum og mæta þeim á meðan að Pútín og Xi geta setið eins lengi og þeir vilja,“ segir Guðmundur.
Fundurinn í dag var sums staðar borinn saman við Jaltaráðstefnuna 1945 þegar leiðtogar Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Bretlands skiptu heiminum upp í áhrifasvæði eftir seinni heimsstyrjöldina.
„Það var ekkert svoleiðis sem gerðist þarna því engin af þeim deilumálum sem, sem eru nú ofarlega á baugi, Úkraínustríðið, stríðið í Íran, ekkert af þessu var leyst og komu ekki fram neinar tillögur um það. Það í sjálfu sér undirstrikar að smærri ríki eins og Úkraína til dæmis geta staðið uppi í hárinu á þeim stærri,“ segir Guðmundur.
Komust ekki að neinni niðurstöðu
Það sama megi segja um Íran og þetta sýni að stórveldi geti ekki endilega ráðskast með smáveldin eins og ekkert sé. „Það kannski finnst mér áhugaverðast í þessu sem er að gerast núna,“ segir hann.
Svo stórir leiðtogafundir eru oft lengi í undirbúningi og embættismenn þegar búnir að leggja drögin að því sem á að samþykkja.
„Það var held ég ekkert svoleiðis í þessu þannig að eftir stendur að þeir ræddu mikilvæg málefni en komust ekki að neinni almennri niðurstöðu nema að brosa og segja að þetta haldi áfram. Þannig að því leytinu til er þetta fyrst og fremst svona, eins og sagt er á ensku, photo op, tilefni til að láta taka ljósmynd af sér þremur standandi saman.“