Verð hlutabréfa í gervigreindarfyrirtækinu Anthropic endaði 17% hærra en þau voru metin á fyrir opnun markaða. Anthropic var sett á markað í dag og er þar með fyrst stóru gervigreindarfyrirtækjanna til þess.
Verð við lokun markaða var 97 dollarar á hlut en Anthropic hafði sjálft metið virði hvers hlutar á 83 dollara, sem nú þegar var yfir spám. Fjárfestar hafa því ekki látið áhyggjur af njósnaskandal Nvidia eða ótta við bólu í gervigreindartækni stöðva sig.
Heildarvirði hlutabréfanna var í lok dags 1.500 milljarðar dollara sem samsvarar um 190 þúsund milljörðum króna.
Verðið var hæst strax við opnun markaða, 111,5 dollarar á hlut. Heildarvirði fyrirtækisins var því stutta stund metið á um 2.000 milljarða dollara, andvirði 250 þúsund milljarða króna.
23 milljarðar dollara til hvers stofnanda
Dagurinn var þó nokkuð erfiður á mörkuðum vestanhafs, ekki síst fyrir önnur tækni- og gervigreindarfyrirtæki. Bæði Nasdaq og S&P 500 vísitölurnar féllu um meira en tvö prósent. Hlutabréf Alphabet, móðurfyrirtækis Google, féllu um 3% og hlutabréf Amazon um 3,9%.
Stofnendur Anthropic, sjö talsins, eiga hver um sig um 240 milljónir hluta. Hver þeirra á því bréf að virði rúmlega 23 milljarða dollara, um 2.900 milljarða króna. Þetta kemur fram í umfjöllun BBC.
Stofnendur Anthropic eru Dario og Daniela Amodei, Tom Brown, Jack Clark, Jared Kaplan, Sam McCandlish og Chris Olah.
Þá eiga tæknifyrirtækin Amazon og Google hlutabréf að virði 187 milljarða dollara annars vegar og 174 milljarða dollara hins vegar.