Lilja Benatov Hjartar skrifar:
Ég hugsa stundum um eftirmála árásar Hamas og annarra hryðjuverkasamtaka á Ísrael þann 7. október 2023. Það var frekar augljóst, þegar á fyrsta degi og dagana á eftir, að margir voru tilbúnir til þess að útskýra fyrir almenningi að þetta væri eðlileg árás undirokaðs fólks á nýlenduherrana. Virtir álitsgjafar útskýrðu að við þessu hefði verið að búast vegna þess að fólkið á Gaza vildi frelsi. Ísraelska ríkið hafði ekki haft tíma til að finna alla þá sem höfðu verið drepnir, og vissi ekki enn hve margir hefðu verið teknir sem gíslar, en þessir sömu álitsgjafar vissu þegar að Ísrael myndi há þjóðarmorð á Gaza. Ég upplifði þetta eins og ég væri stödd í fjórðu víddinni, eða í einhvers konar dystópískum veruleika.
Samt þurfti enginn að giska á raunveruleg markmið Hamas, því samtökin höfðu þegar birt þau opinberlega tveimur árum fyrr. Í september 2021, í miðjum Covid-faraldrinum, héldu Hamas-samtökin ráðstefnu á Gaza undir yfirskriftinni „Promise of the Hereafter – Post-Liberation Palestine“. Yahya Sinwar ávarpaði fundargesti. Opinber vinnuskjöl og niðurstöður þessa fundar lýsa með þeirra eigin orðum stjórnsýsluáætlun fyrir það hvernig samfélagið ætti að vera eftir að Ísraelsríki yrði þurrkað út.
Samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð er lykilatriði þjóðarmorðs ásetningur til að eyða, að öllu leyti eða að hluta, tilteknum þjóðernis-, kynþátta- eða trúarhópi. Ef við lesum skjölin frá 2021 kemur í ljós nákvæm og kerfisbundin áætlun um hvernig fara átti með íbúa Ísraels eftir hina svokölluðu frelsun Palestínu. Þar er íbúum skipt í þrjá flokka. Bardagamenn og þeir sem bera vopn eða veita mótspyrnu eiga að vera drepnir eða teknir til fanga. Gert er ráð fyrir því að stór hluti almennra borgara muni flýja landið án þess að mega snúa aftur, sem felur í sér þjóðernishreinsun í orðsins fyllstu merkingu. Bent er á að sérfræðingar og menntafólk, svo sem læknar, verkfræðingar, tæknifræðingar og vísindamenn, megi aftur á móti ekki yfirgefa landið. Markmiðið með því er augljóslega að nýta þekkingu þeirra til að halda gangandi sjúkrahúsum, rafmagni og vatnsveitum þar til nýir valdhafar geta tekið við. Hér höfum við skriflega, skipulagða áætlun um útrýmingu ríkis, brottrekstur íbúa og kerfisbundna flokkun og kyrrsetningu fólks á grundvelli þjóðernis og menntunar. Ef þetta er ekki skólabókardæmi um skriflegan ásetning um þjóðarmorð og þjóðernishreinsun, þá eru þessi hugtök orðin innantóm.
Það sem ég skrifa hér er í raun líkara lygasögu. Hægt væri að halda því fram að ráðstefnan 2021 hafi aðeins verið fræðilegar vangaveltur en ekki raunveruleg hernaðaráætlun. Til þess að taka af allan vafa nægir að skoða hernaðarfyrirmæli Al-Qassam hersveita Hamas (Operations Order No. 1), dagsett 5. október 2023. Sjálft Al Jazeera birti þau opinberlega í rannsóknarþætti sínum á arabísku, „What Is Hidden Is Greater“, þann 24. janúar 2025, þar sem Hamas lét sjónvarpsstöðinni í té leyniskjöl og myndefni frá undirbúningi árásarinnar. Í fyrirmælunum, sem gefin voru út tveimur dögum fyrir árásina, er vísað í sömu trúarlegu forsendur og á ráðstefnunni 2021, og vitnað beint í tiltekna kafla í Kóraninum. Þar segir að aðgerðin byggi á trú á loforð Guðs um að niðurlægja gyðinga, ekki aðeins hermenn eða stjórnvöld heldur gyðinga almennt, og tortíma þeim. Að lokum er kveðið á um að aðgerðin hefjist klukkan hálf sjö að morgni laugardagsins 7. október og að sveitirnar skuli strax undirbúa næsta skref: að leggja landið undir sig.
Það sem fær kalt vatn til að renna á milli skinns og hörunds er hvernig höfundar þessara skjala sáu fyrir sér viðbrögð umheimsins á eftir. Í niðurstöðum ráðstefnunnar frá 2021 er gert ráð fyrir því að þegar verkinu væri lokið, Ísrael horfið og nýtt íslamskt ríki risið frá ánni Jórdan til Miðjarðarhafs, myndu alþjóðasamfélagið og Sameinuðu þjóðirnar einfaldlega sætta sig við orðinn hlut. Gert var ráð fyrir að ríki heims og alþjóðastofnanir myndu stíga inn, viðurkenna hið nýja ríki og veita því fjárhagslegan og tæknilegan stuðning til uppbyggingar. Firringin er algjör. Annars vegar er alþjóðalögum og stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna hafnað alfarið með því að ætla að þurrka út fullgilt aðildarríki og svipta íbúa þess öllum grundvallarmannréttindum. Hins vegar er gert ráð fyrir að nákvæmlega sama alþjóðakerfi muni kvitta upp á niðurstöðuna með diplómatískri viðurkenningu og fjármagni um leið og rykið sest.
Það er jafnframt lýsandi fyrir gjána á milli raunveruleikans og vestrænnar umræðu að Hamas skuli sjálft hafa afhent Al Jazeera hernaðarfyrirmælin frá 5. október til birtingar. Á arabísku, gagnvart sínum eigin markhópi, fara samtökin ekkert leynt með trúarlegar forsendur sínar eða markmiðið um að tortíma gyðingum. Ætla mætti að þau treysti einfaldlega á að við á Vesturlöndum lesum engar frumheimildir, og sú ágiskun virðist hafa reynst rétt. Þegar við neitum að viðurkenna hið augljósa og kjósum að líta undan þegar samtök á borð við Hamas sýna umheiminum hvað þau sækjast eftir, þá erum við stödd á hálum ís. Staðreyndirnar liggja fyrir, svart á hvítu, og spurningin er aðeins hvort við þorum að horfast í augu við þær.
Höfundur er stofnandi Borgarahreyfingarinnar og fyrrverandi meðeigandi DV og Smugunnar